samgöngumál.
Virðulegi forseti. Ég man ekki betur en Norðfjarðargöng hafi verið inni á stuttu áætluninni sem kom í þingið eftir að ég varð þingmaður og það var eftir hrun. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að það varð bankahrun, en ég er að tala um öryggissjónarmið, byggðasjónarmið og annað slíkt.
Mig langar til að vekja sérstaka athygli á því að Austurland hefur gengið á undan með góðu fordæmi í sameiningu sveitarfélaga, í sameiningu heilbrigðisstofnana. Nú á að fara í sameiningu stoðstofnana. Ein af forsendunum fyrir því að hægt sé að fara í svona vandaða faglega vinnu og í raun að minnka yfirbyggingu er sú að samgöngur séu góðar. Það er búið að lofa því aftur og aftur að við munum fá Norðfjarðargöng í staðinn fyrir að vera svona tilbúin að vinna saman Þess vegna voru konur á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði samþykkar því að fæðingarþjónusta yrði lögð niður á þeim stöðum vegna þess að búið er að lofa samgöngubótum, það er búið að lofa Norðfjarðargöngum í áratugi. Þess vegna vorum við tilbúin til að fara út í þetta. (Forseti hringir.) Finnst hæstv. ráðherra það ekki skipta máli? Fjórðungssjúkrahúsið okkar er handan við handónýt jarðgöng. Konur frá Seyðisfirði þurfa að fara yfir tvo hæstu fjallvegi landsins til að fjölga sér.