Icesave og hugsanleg ráðherraskipti.
Frú forseti. Ég tek undir með formanni Framsóknarflokksins og hrósa hæstv. forsætisráðherra fyrir skýr orð um að við Íslendingar þurfum að sýna samstöðu, hin pólitísku öfl, hin ólíku öfl í samfélaginu, þegar kemur að málsvörn okkar í Icesave-málinu. Þess vegna skiptir gríðarlega miklu máli að tryggja að sem flestir sem koma að borðinu vinni saman opið og í náinni samvinnu við alla sem hafa komið að málinu. Því verður að segja það hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra til hróss að eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar lá fyrir hefur hann ekki bara virkjað ólíka pólitíska flokka heldur líka þá sem voru mjög eindregnir andstæðingar Icesave-samkomulagsins og er það vel.
Hæstv. forsætisráðherra sagði áðan að efnahags- og viðskiptaráðherra mundi gegna áfram veigamiklu hlutverki. Ég held að það væri rétt af forsætisráðherra að tala mjög skýrt. Af hverju getur forsætisráðherra ekki sagt efnahags- og viðskiptaráðherra, í ljósi þess hvernig hann hefur haldið á málum eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að forræði málsins sé í hans höndum? Að fenginni reynslu sjáum við að aðrir ráðherrar hafa ekki farið hönduglega með forræði Icesave-málsins.
Við treystum á að þau vinnubrögð sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur sýnt í þessu verði viðhöfð. Þess vegna spyr ég í fyrsta lagi hæstv. forsætisráðherra: Af hverju getur forsætisráðherra ekki talað skýrt og sagt: Já, efnahags- og viðskiptaráðherra mun hafa forræði þessa máls?
Í öðru lagi: Er ekki alveg ljóst að sú umræða sem verið hefur um hugsanlega uppstokkun í ríkisstjórninni muni veikja stöðu okkar, þ.e. ef efnahags- og viðskiptaráðherra verður ýtt út úr ríkisstjórninni? Mun það ekki veikja stöðu okkar Íslendinga þegar kemur að málsvörn í Icesave-málinu?