140. löggjafarþing — 37. fundur,  15. des. 2011.

fjársýsluskattur.

193. mál
[11:33]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Forseti. Kostnaður samfélagsins af starfsemi fjármálafyrirtækja hefur verið gífurlegur á þessari öld. Hér er allt enn á öðrum endanum og uppbyggingin er gríðarlega kostnaðarsöm. Við sjáum ekki fyrir endann á þessu og því vil ég leggja til í umræðunni að þessi möguleiki verði skoðaður vel.