140. löggjafarþing — 37. fundur,  15. des. 2011.

fjársýsluskattur.

193. mál
[12:44]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú vill svo skemmtilega til að andsvör breytast í yfirheyrslur en ég skal reyna að svara hv. þingmanni Birki Jóni Jónsson sem hefur mælt hér af miklu viti um fjársýsluskattinn.

Ég verð að segja að mér finnst þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin hefur gert og er að gera með þeim frumvörpum sem eru hér til umfjöllunar þessa dagana, vega að sparnaði í þjóðfélaginu. Þær vega að eftirlaunum fólks vegna þess að þetta er ekki skattur á eignir eins og stjórnarliðar vilja halda fram heldur er verið að skattleggja réttindi venjulegs fólks, réttindi sjómannsins, iðnaðarmannsins, verslunarmannsins og -konunnar náttúrlega. Ég er þeirrar skoðunar að þetta séu afleitar ráðstafanir sem ríkisstjórnin boðar og hefur reyndar boðað með skattstefnu sinni síðan hún tók við völdum 1. febrúar 2009.

Hvað varðar fjársýsluskattinn sérstaklega er ljóst, eins og hv. þingmaður hefur minnst á og við höfum rætt aðeins í andsvörum, að hann mun vega að sparisjóðakerfinu um allt land. Það er veikt fyrir í kjölfar hrunsins en nú er enn frekar vegið að því. Við hv. þm. Birkir Jón Jónsson sem ferðumst um landið vegna vinnu okkar og hittum fólkið sem vinnur í þessum stofnunum, vitum að þetta er sérstök aðför að landsbyggðinni. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann geti fjallað aðeins um hlutverk sparisjóða sem vinnustaða á landsbyggðinni.