140. löggjafarþing — 37. fundur,  15. des. 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

195. mál
[14:27]
Horfa

Birkir Jón Jónsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og þá stefnu ríkisstjórnarinnar að halda áfram að hækka álögur á heimilin og fyrirtækin í landinu. Það er komið nóg af því að auka álögur á skuldsett heimili og skuldsett atvinnulíf á Íslandi í dag. Sú stefna sem ríkisstjórnin hefur rekið núna í tvö og hálft ár, sem byggist fyrst og fremst á því að hækka gjöld á heimilin og fyrirtækin ásamt því að standa í blóðugum niðurskurði en einbeita sér ekki fyrst og síðast að því að auka atvinnu í landinu með jákvæðum breytingum á skattkerfinu, er einfaldlega röng. Við framsóknarmenn höfum mælt fyrir stefnu í efnahags- og atvinnumálum sem liggur fyrir þinginu og þess vegna munum við greiða atkvæði gegn hækkunum á heimilin og fyrirtækin í landinu og halda áfram að tala fyrir þeirri stefnu sem við höfum lagt fram í þinginu.