140. löggjafarþing — 37. fundur,  15. des. 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

195. mál
[14:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Eins og menn vita fór hæstv. ríkisstjórn að flækja skattkerfið með þessari þrepaskiptingu. Menn fara mjög mikinn núna og tala um að hækkunin nemi hvorki meira né minna en 9,8% í lægsta skattþrepinu. Við báðum um upplýsingar um þau áhrif sem það hefði á ráðstöfunartekjur og fengum svarið frekar seint frá fjármálaráðuneytinu.

Það barst í gær og ég tel rétt að upplýsa hv. þingheim um hversu gríðarlega mikið þetta er. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu munar þetta engu fyrir þá sem hafa tekjur undir 210 þús. kr. og engu fyrir þá sem eru með 220 þús. kr. Þetta fer hæst í 0,15% aukningu fyrir 230 þús. kr. en síðan fer þetta lækkandi og er tiltölulega fljótt, áður en komið er að meðallaunum, komið í 0,05% aukningu. Auðvitað ber að gleðjast yfir því sem vel er gert en ég held að menn ættu ekkert að missa sig.