fjársýsluskattur.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson kom inn á punkt sem ég verð að játa að er dálítið viðkvæmur fyrir mig. Nú hef ég setið á þingi í rúmlega átta ár og er í meginatriðum nokkuð sáttur við veru mína hér og það sem ég hef gert á þingi. En það eru ákveðnir þættir sem ég vildi hafa gert öðruvísi. Einn af þeim er sá að ég ásamt öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, meðan við vorum í ríkisstjórn, bar ábyrgð á því að útgjöld hins opinbera fóru mjög vaxandi, mestan part auðvitað til voðalega góðra mála, það eru alltaf góð mál sem um er að ræða, en við vorum ekki nægilega fastir fyrir, stóðum ekki nægilega fast á bremsunni, hvorki þegar við vorum í ríkisstjórn með flokki hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar né eftir að við hófum samstarf við Samfylkinguna árið 2007.
Það er alveg rétt sem kom fram í máli hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar að útgjöldin jukust mjög mikið eftir þá breytingu á árunum 2007 og 2008. Við voru óvarkárir fyrir en eftir að Samfylkingin kom inn í ríkisstjórn í stað Framsóknarflokksins fór eiginlega allt úr böndunum. Það verður að segjast eins og er. Á því berum við þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem þá sátum auðvitað okkar ábyrgð, þó að við reyndum kannski af veikum mætti að sporna eitthvað á móti, þá var það engu að síður svo að við tókum ásamt Samfylkingunni sameiginlega ábyrgð á (Forseti hringir.) allt of lausbeislaðri stefnu í ríkisfjármálum á þeim tímum.