140. löggjafarþing — 37. fundur,  15. des. 2011.

fjársýsluskattur.

193. mál
[23:47]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að ekki leiki nokkur vafi á því að innihald þessa frumvarps hljómar auðvitað mjög vel í eyrum almennings. Fjársýsluskattur, þetta er mjög auðseljanlegt orð, eru menn á móti fjársýsluskatti? Er hv. þingmaður á móti því að bankarnir leggi sitt til samfélagsins? En þegar farið var að kafa ofan í þetta mál og það kemur raunar fram í nefndarálitum og meira að segja í nefndaráliti meiri hlutans hafa menn áttað sig á því að frumvarpið sem slíkt talar sínu máli í þessu efni. Innihald frumvarpsins er auðvitað á þá leið að fjöldi fólks mun missa vinnuna. Þetta mun koma, eins og hv. þingmaður nefndi, verst niður á litlum fjármálafyrirtækjum og í rauninni koma í veg fyrir fjölbreytni á fjármálamarkaði. Í smærri fjármálafyrirtækjum er launakostnaður hærra hlutfall en þeim sem stærri eru og þarna tapast sérstaklega mikið af kvennastörfum. Þetta sýnir í rauninni og ég ítreka það sem ég sagði áðan að hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri er að gera. Það er farið fram með einhver popúlistahugtök sem selja mjög vel eins og ég lýsti áðan, þ.e. fjársýsluskattur. Það getur enginn verið á móti því að bankar leggi sitt til samfélagsins. En þegar farið er að rýna í það sem á bak við þetta er kemur auðvitað allt annað upp úr dúrnum eins og komið hefur fram í umræðunni og kemur fram í nefndarálitunum og í umsögnum um þetta mál. Málið er með allt öðrum hætti en reynt var að markaðssetja það fyrir þjóðinni áður en lagt var af stað.