140. löggjafarþing — 37. fundur,  16. des. 2011.

fjársýsluskattur.

193. mál
[00:24]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður verður seint sakaður um málþóf því að ræða hans var mjög málefnaleg. Ég hef hlustað á fyrri ræður hans í dag og þessi var út frá allt öðru sjónarhorni og setti nýjan vinkil á þetta mál.

Mig langaði að ræða við hv. þingmann um það sem kom meðal annars fram í ræðu félaga hans hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar áðan og tengdist því að í umsögnum um þetta mál hefur verið fullyrt að það muni draga úr getu bankanna til að leiðrétta skuldir heimilanna.

Nú er það svo að af þessum skatti eiga að koma tekjur í ríkissjóð. Þær tekjur munu valda því, samkvæmt umsögnum og öllu sem liggur fyrir, að ekki verður sami möguleiki fyrir hendi til að leiðrétta skuldir heimilanna í gegnum bankana. Þá veltir maður því óneitanlega fyrir sér hvort ekki hefði verið skynsamlegt, á sama tíma og verið væri að rýra möguleika bankanna til að leiðrétta skuldir heimilanna, að ráðast hugsanlega í skattalækkanir til handa heimilum í landinu, t.d. með lækkun á bensíngjaldi, olíugjaldi eða öðru. Þá yrðu þeir fjármunir notaðir á móti, fólkinu í landinu til góða.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála því sem fram kemur í umsögnum um málið og hefur komið fram í ræðum, meðal annars hjá félaga hans hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, og hvort hann sé sammála því að frumvarpið dragi úr möguleikum bankanna til að leiðrétta skuldir heimilanna og hvort það sé ekki grafalvarlegt mál ef svo er.