fjársýsluskattur.
Hæstv. forseti. Ég náði ekki alveg að koma öllum þeim atriðum að í síðustu ræðu minni sem ég ætlaði að nefna. Þau lúta kannski fyrst og fremst að því að tekin verði enn ein yfirferðin á frumvarpinu með breytingartillögum út frá lagatæknilegum forsendum. Verði það óheillaskref stigið að frumvarpið verði samþykkt sem lög frá Alþingi verði það að minnsta kosti gert þannig að frumvarpið og lögin verði skýr og skiljanleg og öllum sem eiga eftir að fara að þeim lögum sé ljóst hvernig með á að fara.
Ég vék að því hverjir væru skattskyldir aðilar og hvort nægilega skýrt kæmi fram hverjir það væru. Það má til dæmis orða spurningu í því sambandi hvort skattskyldir aðilar, t.d. verktakar, eigi að greiða skattinn af mótteknu fé, hugsanlega mótteknu fé eingöngu eða af greiddu fé, t.d. því sem þeir greiða til undirverktaka. Hvaða regla á að gilda um þetta ef samningssamband aðila er með þeim hætti sem hér um ræðir, sem er hugsanlegt á ákveðnum sviðum sem undir skattskyldu virðast geta fallið miðað við upphafsákvæði frumvarpsins?
Ég nefndi líka áðan gildistökuákvæði og dagsetningarákvæði sem mér sýnist að þurfi að fara eitthvað betur yfir til að það sé skýrara.
Þriðja atriðið sem ég vildi nefna í þessu sambandi er orðalagið í 5. breytingartillögu meiri hlutans þar sem fjallað er um 18. gr. Í lokamálslið a-liðar segir:
„Sérstaki fjársýsluskatturinn skal vera 6% af tekjuskattsstofni yfir 1.000.000.000 kr. …“
Eiga þetta að vera 6% af því sem er umfram 1.000.000.000 kr. eða af allri upphæðinni, þ.e. ef um er að ræða tekjuskattsstofn sem er 1.000.000.001 kr. á þá að borga þennan sérstaka tekjuskatt sem 6% af krónunni sem er umfram milljarðinn? Hvað er átt við með þessu? Þetta þyrfti hugsanlega að skýra nánar. Ég skora á nefndina að skoða það hvort umorða mætti þetta til að þarna leiki ekki vafi á um, vegna þess að augljóslega getur þetta skipt verulega miklu máli, hvor skilningurinn er. Ef upphæðin fer yfir 1 milljarð á þá að greiða 6% af heildarupphæðinni eða aðeins af því sem fer umfram milljarðinn? Það þarf að skerpa á því, finnst mér, þannig að ekki komi upp álitamál varðandi framkvæmdina.
Síðan eru reyndar tvö atriði önnur sem ég ætla að nefna í fljótu bragði. Vikið er að þeim í nefndaráliti meiri hlutans. Annars vegar eru það athugasemdir frá fulltrúum vátryggingamiðlara og hins vegar fulltrúum slitastjórnar og skilanefndar Glitnis í tölusettum liðum á bls. 3. Í nefndaráliti meiri hlutans eru ákveðin svör við því sem fram kemur af þeim athugasemdum, en ég verð að játa að svörin, eins og þau birtast í 6. og 7. tölulið á bls. 3 í nefndaráliti meiri hlutans — ég er ekkert endilega miklu nær.
Verið er að fjalla um stöðu vátryggingamiðlara, lítilla vátryggingamiðlara, og þá er sagt í nefndaráliti meiri hlutans:
„Í tilefni af athugasemdum Samtaka verslunar og þjónustu fyrir hönd vátryggingamiðlara bendir ráðuneytið á“ — þ.e. fjármálaráðuneytið — „að í dönskum lögum nái hliðstæð skattheimta ekki til aðila með skattstofn undir tilgreindum mörkum.“
Hvað þýðir það varðandi túlkun þessa ákvæðis sem við erum með í frumvarpinu? Ég hef ekki hugmynd um það. Ég veit ekki við hvað er átt. Það kann að vera að ókunnugleiki minn valdi þar um en ég sé ekki að þetta tölusetta svar mundi hjálpa mikið í lögskýringum.
Sama á reyndar við um það sem kemur varðandi athugasemdir slitastjórnar eða skilanefndar Glitnis í 6. tölulið í svari meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Þar er bara vísað til minnisblaðs ráðuneytisins (Forseti hringir.) um að það verði eðli starfseminnar sem verði ráðandi um hvort hún falli undir frumvarpið. (Forseti hringir.) Því miður, hæstv. forseti, segir það mér ekki mikið, heldur segir það mér eitt að þarna er eitthvert stórt túlkunaratriði sem er eftir.
Ég lýk nú máli mínu, (Forseti hringir.) hæstv. forseti, og mun hugsanlega koma inn í umræðu síðar, annaðhvort síðar við 2. umr. eða við 3. umr. ef tilefni gefst til.