140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

störf þingsins.

[10:59]
Horfa

Lúðvík Geirsson (Sf):

Frú forseti. Ég get ekki vikist undan því að ræða lítillega vinnulag og vinnubrögð Alþingis eins og þau hafa verið á undanförnum dögum. Það er eitt að fylgjast með því utan frá sem almennur íbúi og undrast það sem hér á sér oft stað á annatímum, hvað þá að sitja í þingsal og fylgjast með og upplifa það sem hér fer fram.

Hér er stundað málþóf daginn út og inn, langt fram á nætur þar sem efnisleg umræða er oft og tíðum langt frá því sem umræðuefni þingfunda gefur tilefni til. Þannig hefur verið fram haldið með þessi mál út alla þessa viku og nú á lokadegi þings samkvæmt starfsáætlun liggja fyrir meira en 30 mál sem eru órædd og óafgreidd, mörg afar brýn og tengjast nýafgreiddum fjárlögum landsins. Það er með öllu óviðunandi að stjórnarandstaða beiti sér með þeim hætti sem raun ber vitni og haldi þinghaldi í heljargreipum, skapi sér stöðu til að reyna að ráða því í raun og veru hvaða mál eru til umræðu og hvaða mál koma ekki á dagskrá og ætli svo á síðustu metrunum að stýra því líka hvaða mál eru tekin fram hjá öllu öðru í afgreiðslu þingsins eins og við höfum orðið vitni að nú í umræðunni.

Í ræðustól þingsins fyrir nokkrum áratugum var kastað fram þeirri hugmynd að kannski væri ástæða til að setja upp rólur í hliðarsölum þar sem einstaka þingmenn, sem geta ekki unað þeim almennu starfsháttum sem eiga að vera á þinginu, gætu dundað sér. Ég held satt að segja, virðulegi forseti, að ástæða væri til að taka þá tillögu aftur til skoðunar.