hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegur forseti. Þetta er inneign okkar hjá sjóðnum og það sem mestu varðar í því er sá fjórðungur fjárhæðarinnar sem lagður er fram í erlendum gjaldeyri. Það gerist þannig, þannig að það sé bara skýrt, að af innstæðum okkar í gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans á erlendum bankareikningum verða 9 milljarðar, hluti forðans, fluttir á innstæðureikning í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Það er síðan alveg rétt hjá hv. þingmanni að ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn yrði gjaldþrota hlytist auðvitað af því tjón fyrir Ísland. Þá er til þess að líta að það er nánast útilokað að sjá það fyrir sér án þess að þar með hafi skapast miklu meiri og víðtækari vandamál, ekki bara í heiminum heldur líka á Íslandi. Það mundi aðeins gerast við aðstæður þar sem helstu útflutningsmarkaðir okkar mundu meira eða minna hrynja, afurðaverð hvort sem er í áli eða fiski og heimurinn í raun og veru allur vera í kaldakoli. Þá yrði þessi inneign hluti af því vandamáli sem við þyrftum að glíma við.
Hins vegar skapar aðild okkar að sjóðnum, eins og við þekkjum, okkur líflínu, möguleikann á því að ef við verðum fyrir áfalli getum við leitað þangað og fengið stuðning til að rísa á fætur á ný eins og við höfum nýlega góða reynslu af.