hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég skildi ekki alveg lokaorðin hjá hv. þingmanni. Hv. þingmaður veit að það var gengið frá endurreisn bankanna löngu eftir að ég var hættur í ríkisstjórn. (Gripið fram í.) Ég ætla ekki hv. þingmanni, sem veit betur, að halda því fram að fyrri ríkisstjórn hafi stýrt því sem ríkisstjórn hæstv. forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur gerði, það væri svo fáránlegt.
Hins vegar minntist hv. þingmaður á hluti sem er mjög mikilvægt að komi fram. Menn tala stundum um að það sé svo stórt mál að gengið hafi verið í ábyrgð fyrir allt bankakerfið og að 95% af innstæðum hafi verið upp á 15 milljónir og minna. Það er ekki stóra málið varðandi þau 5% sem eftir eru. Ef menn hafa talið það mistök á innstæðunum hafa verið mörg tækifæri til að leiðrétta það.
Áætlun ríkisstjórnar Geirs Haardes gekk út á það að neyðarlögin voru sett og þá lá fyrir að hluthafarnir og þeir sem fjármögnuðu bankana töpuðu. Það er bara eðlilegt og siðferðilega rétt, þeir fjármögnuðu bankana. Þetta voru að stærstum hluta erlendir kröfuhafar, svo sannarlega innlendir aðilar líka en að stærstum hluta þó erlendir lánardrottnar. Síðan gekk þetta út á að endurreisa og hagræða í bankakerfinu, en enn er ekki komin nein stefna varðandi bankakerfið. Við fórum út 1. febrúar 2009, nokkrum vikum eftir hrunið. Það átti að koma hjólum atvinnulífsins af stað og setja allan kraft í það. Það voru lögð drög að því og sömuleiðis að leiðrétta skuldir, bæði almennings og fyrirtækja. Mats Josefsson lagði mjög mikla áherslu á að sú stýring þyrfti að vera í höndum ríkisins.
Eftir þessu var ekki farið. (Forseti hringir.) Það má örugglega skamma hv. þingmann sem hér stendur fyrir ýmislegt en ekki þetta.