hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir andsvarið. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að ræða þetta mál vel og ég vil nota tækifærið og spyrja hv. þingmann hvort hann telji ekki eðlilegt að þegar við höfum lokið við umræðuna hér — og eins og hv. þingmaður minnist á og fer yfir höfum við góðan tíma til að taka þessa umræðu — og skynsamlegt að hv. fjárlaganefnd fari yfir málið. Sumu getum við breytt, öðru ekki. Það er mjög óheppilegt að þetta komi fram í mars og að við höfum bara einhverja daga, kannski viku, tvær vikur ef við ætlum að klára fyrir áramót, til að klára. Við höfum ekki meiri tíma en það. Eins og hv. þingmaður vísaði til er þetta partur af stóru máli sem snýr að stöðunni í alþjóðlegum efnahagsmálum. Það er afskaplega mikilvægt að við köllum til okkar færustu sérfræðinga til að fara yfir það mál því að það gæti orðið að reikningi hjá íslenska ríkinu ef illa fer.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið, ég er sammála honum í því hvernig hann leggur þetta upp, og spyr að tvennu: Finnst honum ekki eðlilegt að málið fari fyrir fjárlaganefnd? Við viljum öll að traust Íslands á alþjóðavettvangi sé sem mest, en eitt af því sem ég held að sé mikilvægt og sé leið til þess að auka traust er að sýna að við vöndum okkur. Er hundrað í hættunni ef við klárum þetta ekki (Forseti hringir.) fyrir áramót? Er hægt að fá betri upplýsingar um það?