hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég gaf hér yfirlýsingu í morgun þar sem ég benti á að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hygðist auka stofnframlag sitt til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um 37,2 milljarða. Jafnframt benti ég á að fyrsta framlagið, 9,3 milljarðar kr., yrði greitt í gjaldeyri og af gjaldeyrisvaraforðanum úr Seðlabanka Íslands um leið og frumvarpið hefur verið samþykkt. Afgangurinn er sagður í nefndaráliti verða geymdur í Seðlabanka Íslands, 27,9 milljarðar. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÁI): Forseti biður um meiri ró í salinn.)
Þeir verða þá tiltækir fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um leið og sjóðurinn þarfnast peninganna. Hér er nokkurt misvægi á milli þess sem stendur í nefndaráliti og í frumvarpi og því minnisblaði sem samþykkt var af Thomas Krueger 11. mars 2011. Það minnisblað er um verklag við samþykkt og greiðslu á kvótaaukningu samkvæmt fjórtándu almennri endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um kvótaúthlutun. Þar stendur:
„Sá hluti kvótaaukningarinnar sem eftir er (75 prósent)“ — þ.e. eftir að búið er að greiða 1/4 í gjaldeyri upp á 37 milljarða — „skal greiddur í eigin gjaldmiðli aðildarríkisins, annaðhvort inn á reikning AGS nr. 1 eða með útgáfu víxils sem varðveittur skal í verðbréfareikningi sjóðsins hjá vörsluaðila AGS hjá aðildarríkinu, oftast seðlabanka þess.“
Þarna er eitthvert misræmi.
Það sem er merkilegt er að þetta mál virðist eiga að fara í gegnum þingið í skjóli þess asa sem nú ríkir vegna anna við þinglok. Svo virðist sem það hafi átt að fara í gegn án allrar umræðu. Hér er um stórmál að ræða og ég tek svo djúpt í árinni að segja að þeir sem er annt um fjárhagslegt sjálfstæði Íslands ættu að huga vel að því hvað hér er í gangi.
Ef ég fer aðeins yfir hvað er að gerast úti í heimi í þessu máli er það þannig að 9. september, eftir að málið hafði verið rætt tvisvar sinnum í Bandaríkjaþingi, var því vísað til utanríkismálanefndar og fram er komið frumvarp sem borið er uppi af öldungadeildarþingmanninum Jim DeMint frá Suður-Karólínu þar sem mælst er til þess að þetta verði stöðvað. Jafnframt gaf þýski seðlabankinn út yfirlýsingu í morgun og varaði við því að Þýskaland greiddi fjármuni til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn legði síðan inn til Evrópu í þær aðgerðir sem þar eru í gangi vegna þeirrar miklu áhættu sem þar ríkir.
Við virðumst ekki hér á Íslandi, a.m.k. ekki ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, hafa miklar áhyggjur af málinu. Í morgun varaði þýski fjármálaráðherrann, Wolfgang Schäuble, við þeirri hættu sem fylgdi því að setja fjármuni til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn færi síðan með til Evrópu.
Ég vildi koma því að í upphafi ræðu minnar að ég er ekki alveg einn um að hafa áhyggjur af þessu máli. Svo virðist sem þýski seðlabankinn hafi miklar áhyggjur af því sem og þýska fjármálaráðuneytið. Bandaríkjamenn hafa lagt fram frumvarp til að stöðva málið og jafnframt hefur það tvisvar verið rætt í bandaríska þinginu. Því var vísað til utanríkismálanefndar þar sem það er nú til umræðu og við sjáum hvað kemur út úr því.
Eitt í þessu samhengi er ef til vill athyglisvert. Nýr seðlabankastjóri Evrópu, Mario Draghi, bendir á þá augljósu staðreynd að ríki Evrópu verði að taka sig saman í andlitinu vegna þess að enginn geti bjargað ríkjunum nema þau sjálf. Jafnframt segir hann að það sé mjög mikilvægt að missa ekki það momentum — virðulegi forseti, afsakaðu að ég skuli sletta — sem núna ríkir í Evrópu um að reyna einhvern veginn að tjasla evrusvæðinu aftur saman og þá með peningum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem við erum meðal annars að ræða hér í dag.
Upphaflega planið var að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mundi leggja 200 milljarða dollara inn í Evrópu og það verði tekið af stofnfjáraukningu bankans og aukaframlögum. Öll þessi umræða sem er að fara fram akkúrat núna meðan við erum hér í sölum Alþingis gengur út á að ríki vara sérstaklega við því að þetta verði gert. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur hins vegar ekki miklar áhyggjur af því og ætlar að snara málinu hér í gegn á einum degi. Ég sé mig tilknúinn til að vara mjög eindregið við þessu og legg til að þetta mál verði tekið af dagskrá og sent aftur til efnahags- og viðskiptanefndar. Nefndin getur þá fjallað um þá áhættu sem í málinu er fólgin og hvernig þetta mál liggur allt saman. Það fékk nánast enga umfjöllun í nefndinni og ég tek fram að það er ekki nefndarformanni að kenna heldur þeirri kynningu sem nefndin fékk á málinu. Upphaflega var það kynnt sem tæknilegt og tengt því að atkvæðavægi Íslands yrði aukið. Það var samþykkt með lögum í janúar sl. og ég stóð meðal annars að því að samþykkja það. Það var látið í veðri vaka að þetta væri eitthvert smámál.
Í nefndarálitinu er gefið í skyn að þetta sé það smámál sem var kynnt fyrir okkur og að þetta séu engar skuldbindingar fyrir Ísland. Eins og ég sagði áðan eru þessir 37,2 milljarðar peningar sem við munum ekki nota í neitt annað. 9 milljarðar af upphæðinni eru greiddir inn til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem veitir okkur síðan aðgang að þeirri upphæð og við getum dregið á lánalínuna hvenær sem er, þ.e. við getum fengið lán sem nemur þeirri upphæð hvenær sem við viljum.
Það er kannski rétt að fara aðeins yfir það hvaðan þessir 9 milljarðar koma. Þeir koma úr gjaldeyrissjóði Íslendinga. Hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar sagði í ræðu sinni þegar hann mælti fyrir málinu að þetta væri gott fyrir okkur, þetta veitti okkur tryggingu ef eitthvað kæmi upp á og þá gætum við alltaf fengið lán út á þetta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni, ef þetta verður að lögum eigum við sem nemur 321,8 milljónum SDR, þ.e. sérstökum dráttarréttindum, í stofnframlagi í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og við getum hvenær sem fengið það lán, þ.e. ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur yfir fjármagninu að ráða.
Fljótt á litið virðist þetta mjög sniðugt en tökum þessa 9,3 milljarða og spáum aðeins í það hvernig flæðið er í þessum peningum og hvort þetta sé jafnsniðugt og hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar heldur fram. Við tökum 9,3 milljarða að láni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á rúmlega 5% vöxtum. Síðan setjum við þessa 9,3 milljarða inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þar sem þeir verða á 0,15% vöxtum. Af einskærri tilviljun getum við síðan hvenær sem er farið til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fengið lánaða þessa 9 milljarða aftur — og á hvaða vöxtum? Á 5,5%, SDR-vöxtunum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hirðir þarna vaxtamun, muninn á 5,5% vöxtum og 0,15% vöxtum.
Þessi fjármálalega ráðstöfun hefði örugglega þótt til fyrirmyndar hjá Bakkabræðrum, en að fullvalda ríki skuli standa að svona snúningum er gjörsamlega óskiljanlegt. Aftur á móti skil ég fullkomlega að við viljum vera í því alþjóðlega samstarfi sem við höfum verið í samfleytt síðan á Bretton Woods ráðstefnunni árið 1948 þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn voru stofnaðir. Við Íslendingar vorum stofnaðilar. Ég er samt ekki viss um að þeir sem sátu ráðstefnuna í Bretton Woods hafi haft það í huga sem er að koma fram í þessu öllu saman, þ.e. bakkabræðrahagfræði.
Ég vil nota tækifærið og bæta við það sem ég sagði hér í yfirlýsingu minni í morgun, ég vara mjög eindregið við því að við hlaupum til og samþykkjum þetta. Ég er ekki að segja að við eigum að neita þessu alfarið, alls ekki, heldur: Leggjum málið niður fyrir okkur, förum yfir það og skoðum hvað er að gerast í kringum okkur. Ég er búinn að benda núna á viðvaranir þýska seðlabankans sem og þýska fjármálaráðherrans, ég er búinn að benda á hvað er að gerast í ameríska þinginu þar sem málið hefur verið rætt tvisvar sinnum. Það er búið að vísa því til utanríkismálanefndar og menn vita ekki hvort það kemur út úr þeirri nefnd aftur og það er búið að setja fram frumvarp sem 26 öldungadeildarþingmenn standa að þar sem þeir leggja til að þetta mál verði stöðvað.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur verður aðeins að líta í kringum sig áður en hún ákvarðar hvernig hún ætlar að meðhöndla mál, sérstaklega þegar þau eru komin í þetta alþjóðlega samhengi. Það væri algjört glapræði af okkur núna á einhverjum hlaupum hér á göngunum í önnum sem óhjákvæmilega eru við lok þingsins að samþykkja þetta mál. Ég vara eindregið við þessu. Það er áhætta fólgin í þessu. Ef hlutirnir fara á versta veg í Evrópu og ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn notar þessa peninga sem part af þessu prógrammi sem er búið að samþykkja að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fari út í og ef þessir peningar tapast þar, eða hluti af þeim sem er mjög líklegt, lendir sá skellur fyrst á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, síðan Seðlabanka Íslands og loks á ríkissjóði í fjárlögum. Þetta er mikil áhætta fyrir okkur og þetta er áhætta sem við eigum að ígrunda. Því hvet ég til þess enn og aftur að þetta mál verði tekið af dagskrá og sett inn í efnahags- og viðskiptanefnd þannig að við gerum ekki enn ein glórulausu mistökin í fjármálum ríkissjóðs.
Ég hef talið hér upp bæði Bandaríkin og Þýskaland, gleymdi reyndar að telja upp Bretland sem hefur sagt: Við ætlum ekki að borga nema hluta af þessu inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Í Tékklandi eru uppi sömu efasemdirnar og svona gengur það um alla Evrópu, þ.e. hjá þeim ríkjum sem hafa efni á að borga kvótaaukninguna.
Það sem sumar af þessum þjóðum setja fyrir sig er að nýmarkaðsríkin innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru alls ekkert á þeim buxunum að standa við sinn hluta af kvótaúthlutuninni. Stóru ríkin sem þó hafa sýnt vilja til að standa við kvótaúthlutunina hafa sagt: Við verðum að sjá nýmarkaðsríkin greiða inn í þetta áður en við greiðum. Við viljum ekki ein setja þangað inn fé. Sennilega verður það þó þannig að eftir atkvæðagreiðslu sem verður hér í dag eða á morgun stendur Ísland eitt eftir með að hafa staðið við kvótaaukninguna en önnur ríki bíða og sjá hvað verða vill, hrædd um að tapa þeim peningum sem þau leggja inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Ef við skoðum greinargerð með frumvarpinu og nefndarálit þar sem sagt er að það sé sáralítil, alveg hverfandi, hætta á að þessir peningar tapist held ég að það sé bara rétt að benda aftur á það sem þýski fjármálaráðherrann sagði í morgun, að það væri allt of mikil áhætta tengd þessu. Hann var studdur af þýska seðlabankanum.
Ég hef farið hérna yfir þetta mál og þá stöðu sem málið hefur í alþjóðlegu samhengi. Í þriðja eða fjórða skiptið ætla ég að biðja stjórnarþingmenn og ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að ana ekki út í neitt. Það liggur ekkert á í þessu máli og ég held að það væri ágætt að við notuðum janúar í efnahags- og viðskiptanefnd til að fara yfir þetta mál til að tryggja algerlega að hér verði ekki gerð enn ein fjármálalegu mistökin sem bitna síðan á ríkissjóði og borgurunum í landinu sem enda síðan í skattahækkunum, því að hlutirnir dragast á langinn hérna og skuldir Íslendinga aukast.
Ég höfða til þess í stjórnarþingmönnum sem ætti að vera vit í þessu máli.