hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegur forseti. Það er einmitt það sem ég sagði. Við verðum að segja: Hingað og ekki lengra, á meðan við höfum ekki farið almennilega yfir málið. Það hlýtur nú að hringja einhverjum viðvörunarbjöllum hjá okkur þegar við sjáum að meira að segja seðlabanki Þýskalands og þýski fjármálaráðherrann hafa efasemdir um aukin framlög til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem þó eru til þess ætluð að taka þátt í stóra verkefninu þeirra, fyrirhuguðum björgunaraðgerðum í tengslum við evrukrísuna, þegar meira að segja forusturíkið í því öllu saman og fulltrúar þess hafa efasemdir um málið. Hlýtur það ekki að hringja einhverjum viðvörunarbjöllum hjá okkur Íslendingum og segja okkur að við þurfum að minnsta kosti að staldra við og skoða þetta betur?
Svo tek ég undir það sem hv. þingmaður benti á varðandi undarlega umfjöllun um stöðu Bretlands í Evrópusambandinu meðal annars í íslenskum fjölmiðlum. Ég gerði eins og hv. þingmaður og ákvað að (Forseti hringir.) kanna sjálfur hvernig umræðan hefði verið og get staðfest að hann fór með (Forseti hringir.) rétt mál þar.