140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

304. mál
[17:48]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa ágætu ræðu. Mig langar að nefna eitt atriði. Nú hefur það komið fram að fjölmörg erlend ríki eru að velta því fyrir sér og eru að skoða það mjög gaumgæfilega hvort skynsamlegt sé að samþykkja þessa aukningu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, þar á meðal Bandaríkin, Kanada, Japan og Þýskaland.

Mig langar að velta því upp við hv. þingmann hvort hann telji eðlilegt að Alþingi Íslendinga samþykki fjárveitingu upp á 37,2 milljarða kr. í heildina. Þetta eru nú ekki litlar fjárhæðir í samhengi við þær tölur sem við erum að vinna með dagsdaglega, þótt þetta sé ekki eins og í Þýskalandi, 3.200 milljarðar. Telur hv. þingmaður eðlilegt að málum sem þessum sé laumað inn í þingið á síðustu metrunum?

Mælt var fyrir málinu 8. desember. Núna viku síðar er ætlunin að fara í atkvæðagreiðslu um það og klára án þess að nokkrar umsagnir hafi komið um það, án þess að við séum að skoða á hvaða forsendum önnur ríki eru að draga það að ganga frá þessum samningum og spyrjum þeirra sömu spurninga. Meira að segja er seðlabanki Þýskalands að velta þessu fyrir sér og er efins út af málinu. Eru þetta eðlileg vinnubrögð? Til hvaða ráða teldi hv. þingmaður að við ættum að grípa varðandi þetta mál núna í framhaldinu?