140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

304. mál
[18:23]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Hér var svolítið skemmtileg uppákoma áðan þegar hv. þm. Vigdís Hauksdóttir flutti ræðu. Ákveðinn þingmaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs gekk fram hjá ræðustólnum og sagði: Þvílíkur þvættingur — en hafði ekki áttað sig á að hv. þm. Vigdís Hauksdóttir var að lesa upp úr gamalli ræðu formanns hans, hæstv. fjármálaráðherra Steingríms J. Sigfússonar. Svona breytist greinilega afstaða manna og afstaða hæstv. fjármálaráðherra virðist hafa breyst um margt. Eitt af því sem hefur orðið algjör viðsnúningur í hjá hæstv. fjármálaráðherra er viðhorf hans til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eins og við fengum að heyra í ræðu áðan.

Það hefur gengið á ýmsu og hefur atburðarásin í Evrópu að undanförnu verið með miklum ólíkindum. Nú upp á síðkastið hefur Evrópusambandið að einhverju leyti náð saman við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að koma að björgun evrunnar og raunar Evrópusambandsins alls eftir því sem evrópskir stjórnmálamenn segja. Það er þó mjög óljóst með hvaða hætti það á að gerast. Hvað eftir annað eru birtar miklar yfirlýsingar um að menn hafi náð að leysa málin, a.m.k. náð miklum áfangasigrum á þeim fjölmörgu neyðarfundum sem haldnir hafa verið, og stundum hafa slíkar yfirlýsingar falið í sér að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn komi þar að málum.

Nú virðast menn vera farnir að fá verulegar efasemdir um skynsemi þess að leggja aukið fjármagn inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að standa straum af kostnaðinum við þessar björgunaraðgerðir allar. Það eru ekki bara smáríki sem hafa slíkar efasemdir, einhver lönd utan Evrópusambandsins langt í burtu — nei, aldeilis ekki. Eins og þingmenn hafa rakið hér á undan mér er meira að segja sjálft Þýskaland, forusturíki Evrópusambandsins, landið sem í rauninni stjórnar aðgerðum til að bjarga evrunni og Evrópusambandinu sem kanslari landsins kallar mestu krísu Evrópu frá seinni heimsstyrjöld, hefur efasemdir um að rétt sé að leggja meira fjármagn inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Hæstv. fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon og ríkisstjórnarmeirihlutinn ætla hins vegar að taka að sér að verða fyrst til eða því sem næst að leggja fjármagn inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að hann geti nýtt það í þessum mjög svo óljósu aðgerðum sem ég rakti hér í byrjun. Þetta eru engir smápeningar, 37,2 milljarðar kr. er viðbótarframlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta er há upphæð. Þetta eru heilsárs Icesave-vextir. Þetta er miklu meira en rekstrarkostnaður Landspítala – háskólasjúkrahúss á síðasta ári. Þá segja menn auðvitað: Þetta er bara lán, við fáum það einhvern tímann endurgreitt. Því fylgir að vísu viss áhætta, en á móti má segja að við rekum ríkið að allstórum hluta fyrir lánsfé.

Ríkisstjórnin kynnti í dag áform um að skapa 1.500 ný störf. Ég átta mig reyndar ekki á þessum endalausu tilkynningum um ný störf ríkisstjórnarinnar, sem eru nú yfirleitt 7.000 en eiga nú að vera 1.500. Gott og vel, það mun kosta pening en ekki neinar upphæðir í líkingu við 37,2 milljarða og þeir peningar sem settir verða í störf skila sér vonandi til baka rétt eins og við ætlumst til að lánsfé skili sér. Ég held að það væri skynsamlegri fjárfesting fyrir okkur, ég tala nú ekki um ef önnur lönd ætla ekki að greiða viðbótarframlag í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, að nota þetta fjármagn til atvinnusköpunar á Íslandi til að hefta m.a. þann fólksflótta sem hefur verið í fréttum að undanförnu.

Af hverju hefur fólksflóttinn frá Íslandi verið í fréttum að undanförnu? Fyrir því eru aðallega tvær ástæður, annars vegar yfirlýsing hæstv. forsætisráðherra um að flutningar fólks frá landinu væru ekkert sérstaklega miklir og hins vegar tölfræðilegar staðreyndir sem sýndu fram á að fólksflótti frá Íslandi hefði ekki verið jafnmikill í 100 ár eða frá tíð vesturferðanna. Þetta birtist sem sagt á sama tíma, þ.e. yfirlýsing hæstv. forsætisráðherra um að fólksflótti væri ekkert sérstaklega mikill og svo upplýsingarnar um að hann væri sá mesti í 100 ár. Það er því miður í samræmi við svo margar aðrar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar.

Jafnvel þótt fjármagn sé í einhverjum tilvikum lánsfé sem sett er í atvinnusköpun á Íslandi og geri fólki kleift að búa hér og starfa er því vel varið. Við hljótum að gera ráð fyrir því að það séu ekki síður líkur á að við fáum það til baka en peninga sem settir eru í þetta mjög svo óljósa og óskiljanlega björgunarverkefni hjá Evrópusambandinu. Eins og ég nefndi áðan eru töluverðar efasemdirnar um það, meira að segja innan Evrópusambandsins sjálfs og hjá forusturíki þess, Þýskalandi.

Menn hafa hér vitnað til að mynda í þýska tímaritið Spiegel þar sem kemur fram að þýski seðlabankinn vari við þessu og þýski fjármálaráðherrann hafi sínar efasemdir líka. Þar kemur líka fram að Bandaríkin ætli ekki að leggja fram meira fé, það stefni a.m.k. allt í það, eftir því sem segir í Spiegel, Bandaríkjamenn segi nóg komið af fjárframlögum til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ríkisstjórn Íslands finnst hins vegar ekki nóg komið og þykir þessir 37,2 milljarðar það lítið mál að afgreiða megi þá nánast án umræðu og án skoðunar í nefnd rétt fyrir jól og helst eigum við að vera fyrst til þess. Tékkar segja aftur á móti að þeir muni ekki leggja fram nein framlög nema öll hin Evrópuríkin geri það líka. Japanar eru líka farnir að efast um að ástæða sé til að leggja meira fjármagn inn í Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson lýsti þeirri aðferð sem notuð er við aukin framlög Íslendinga til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem bakkabræðrahagfræði, þ.e. svipað og þegar Bakkabræður reyndu að bera sólina og birtuna inn í bæinn sinn í hattinum sínum. Ég er ekki viss um að þessi hagfræði verðskuldi það heiti. Það er eiginlega of jákvætt heiti á því sem hv. þingmaður lýsti.

Ísland tekur fjármagn að láni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á 5,5% vöxtum, það er reyndar kunnugleg tala og mjög há vaxtatala þegar um svona upphæðir er að ræða, en lánar Alþjóðagjaldeyrissjóðnum pening á 0,15% vöxtum — 0,15% vöxtum. Það má líta á þetta sem sama peninginn sem Íslendingar lána Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á 0,15% vöxtum og taka að láni á 5,5% vöxtum og kalla gjaldeyrisvaraforða Íslands.

Það að kalla þetta bakkabræðrahagfræði finnst mér fullmikil kurteisi af hv. þingmanni. Það er spurning hvort megi kalla þetta svindl, a.m.k. virkar þetta sem blekking. Það eru einmitt svona blekkingar sem eru að koma bankakerfi Evrópusambandsins og heilu ríkjunum á kaldan klaka efnahagslega, svona óraunverulegar millifærslur og leikur að tölum. Við verðum að velta fyrir okkur hvort við eigum að taka þátt í þessu. Við getum a.m.k. ekki gert það án þess að skoða málið gaumgæfilega.

Menn átta sig engan veginn á því hvernig þessi aukna lántaka Evrópuríkjanna hjá Evrópska seðlabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, fjármögnuð þá væntanlega m.a. með þessum framlögum Íslendinga ef af verður, á að leysa nokkurn skapaðan hlut. Eins og við höfum svo oft rætt á Íslandi leysa menn ekki skuldavanda með því að taka ný lán og jafnvel á hærri vöxtum. (Gripið fram í.) Þetta er engin lausn nema hugsanlega fyrir einhverja kröfuhafa evrópskra banka eða bankana sjálfa sem hafa fengið ótrúlega mikið lánsfé frá ríkjum Evrópu að undanförnu til að halda sér gangandi, en kröfuhafar bankanna hafa oft og tíðum sloppið með allt sitt vegna þess að Evrópski seðlabankinn og seðlabankar ríkjanna kaupa af þeim skuldabréf á nafnverði enda þótt þau séu orðin miklu minna virði. Í rauninni er bara um eignatilfærslu að ræða frá skattgreiðendum til bankanna og kröfuhafa þeirra.

Maður veltir því fyrir sér hvort þessi tillaga sem hér er til umræðu feli það í sér að íslenska ríkisstjórnin ætli nú að taka þátt í því að gera Evrópulöndunum betur kleift að halda hugsanlega gjaldþrota bankakerfi sínu gangandi, einmitt það sem Íslendingar gerðu ekki og hafa fengið mikið lof fyrir í umfjöllun erlendis. Íslendingar settu ekki peninga almennings í það að bjarga bönkunum eftir að ljóst var orðið að þeir væru fallnir heldur þvert á móti. Maður veltir því óneitanlega fyrir sér hvort með þessari tillögu eigi í staðinn að nota fjármagn frá íslenskum skattgreiðendum til að ábyrgjast að einhverju leyti lán evrópska bankakerfisins þótt það sé auðvitað með millifærslum. Ríkjunum eru lánaðir þessir peningar og þau nota svo fjármagnið til að bjarga eigin bönkum.

Þá segja einhverjir: Við verðum að vera virkir þátttakendur í alþjóðastarfi. Við getum ekki einangrað okkur. Menn nota jafnvel þann gamla frasa. Eins og sjá má af viðbrögðum meira að segja Þýskalands sjálfs við hugmyndum um aukin framlög til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá snýst þetta ekkert um það. Þetta einangrunartal er algjörlega fráleitt þegar í raun og veru er bara verið að fjalla um að Ísland standi vörð um hagsmuni sína og geri það með rökum og skynsemi. Af því ég nefni orðin rök og skynsemi kemur upp í huga mér að í dag er 95 ára afmæli Framsóknarflokksins. Fyrst ég er farinn að ræða um þetta einangrunartal og að við Íslendingar verðum að vera þátttakendur í alþjóðasamstarfi, sem ég er alveg sammála og framsóknarmenn hafa alltaf verið sammála því, þá eru takmörk fyrir því hverju menn eru tilbúnir að fórna.

Ég ætla að leyfa mér í tilefni dagsins að lesa stutta klausu upp úr viðtali við Steingrím Hermannsson, sem tekið var fyrir 20 árum í tilefni 75 ára afmælis Framsóknarflokksins. Þar segir Steingrímur, með leyfi forseta:

„Við hljótum að taka þátt í fjölmörgum alþjóðlegum verkefnum. Þar á meðal eru mengunarmálin eða umhverfismálin. Mengun andrúmsloftsins, mengun hafsins, eyðing ósonlagsins, svo eitthvað sé nefnt hefur einnig áhrif hér. Við getum ekki fallist á að leita forsjár erlendra ríkja, t.d. Evrópubandalagsins. Við verðum að standa að lausn vandans sem sjálfstæð þjóð og hljótum að gæta þess vel að halda okkar fullveldi. Þess vegna viljum við skoða vandlega alla aðstöðuna hér á landi því í svona samstarfi verðum við aldrei sterkir nema við séum sterkir sjálfir hið innra með okkur. Við eigum að auka fræðsluna, nýta hugvitið og menntaða fólkið og náttúruauðæfi sem vannýtt eru í dag. Við eigum að nýta landið sem ferðamannaland, aðstöðu til sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu og hvíldar í heitum böðum og við útivist, í hreinu lofti og kyrrð undir handleiðslu vel menntaðrar læknastéttar, en nú starfa margir læknar erlendis sem vildu koma heim. Við gagnrýnum þessa ríkisstjórn fyrir forsjárhyggju — hún vill leita á náðir þeirra í Brussel og erlendir aðilar eiga að sjá um hlutina hér að meira eða minna leyti. Við framsóknarmenn munum aldrei taka þátt í því að fórna okkar fullveldi. Framsóknarráðin eru ekki síður mikilvæg nú en þau hafa áður verið og kannski enn mikilvægari.“

Þetta á svo sannarlega við nú 20 árum seinna. Við ættum að hafa þessi orð í huga þegar við metum tillögur eins og þá sem er hér til umræðu um framlag Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins upp á 37,2 milljarða kr. Að sjálfsögðu viljum við taka þátt í alþjóðasamstarfi og gera það vel, en við verðum að gera það sem sjálfstæð þjóð og á okkar forsendum og leggja mat á hvert tilvik fyrir sig, hvort það er skynsamlegt eða ekki.

Hér ræðum við mál sem stórþjóðir, stærstu aðilar að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, virðast ekki telja skynsamlegt, hafa a.m.k. talsverðar efasemdir um.

Ætlum við að taka við leiðsögn í blindni frá fjölþjóðastofnunum, frá Brussel eins og Steingrímur nefndi í viðtalinu eða frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington? Eða ætlum við að skoða málin með rökum og skynsemi? Við hljótum að gera það, sérstaklega í ljósi þess ástands sem nú er ríkjandi í Evrópu og raunar víðar.

Við sem höfum reynslu af mjög sambærilegu ferli við það sem Evrópusambandið er að ganga í gegnum núna eigum að leiðbeina Evrópusambandinu út frá reynslu okkar um hvað sé raunhæft og hvað sé óraunhæft svoleiðis að reynsla Íslands megi nýtast og verða til góðs fyrir aðra. Við eigum ekki að hjálpa til við það að endurtaka sömu mistökin, sama ferlið og var hér, fyrir utan að bæta við nýjum mistökum eins og þeim að halda gjaldþrota bankakerfi gangandi með hætti sem er ekki til þess fallinn að leysa vandann heldur aðeins að gera hann stærri til lengri tíma litið.

Ég legg til að við tökum þá tillögu sem við höfum verið að ræða hér aftur til nefndar og förum yfir hana þar, gefum okkur góðan tíma, það liggur augljóslega ekkert á. Tékkar ætla ekkert að borga fyrr en öll Evrópulönd eru búin að fallast á að taka þátt í þessu og Þjóðverjar eru að skoða málið, svoleiðis að varla liggur okkur á. Við skulum því nota tímann til þess að fara vel yfir þessa tillögu og athuga hvort hún sé skynsamleg, hvort aðrar þjóðir muni yfir höfuð taka þátt og nota um leið tímann til að spyrja stóru spurninganna varðandi stöðuna í Evrópu, hvort ástandið sé ekki orðið ískyggilega líkt því sem við kynntumst í miklu minni mynd, hvort reynsla okkar megi ekki verða til þess að hjálpa til við að takast á við þennan vanda. Að sjálfsögðu eigum við að vera öll af vilja gerð að taka þátt í raunverulegum lausum, lausnum sem skila einhverjum árangri og hafa áhrif til góðs. En við eigum ekki að láta eins og við sjáum ekki vandann, láta hlutina jafnvel fljóta fram hjá okkur án þess að líta á þá, eins og stefndi í að þetta mál gerði, og taka þannig þátt í að búa til enn stærra vandamál og gera enn stærri mistök í Evrópu.

Nú hefur Ísland tækifæri til að nýta reynslu sína öðrum til hagsbóta. Við getum útskýrt fyrir vinum okkar í Evrópu hver staða þeirra er og hjálpað þeim að vinna sem best úr henni. Sú staða er reyndar mjög erfið og ekkert útséð með það að hægt verði að leysa vandann hratt og vel. Raunar virðist það ómögulegt en það er ábyrgð okkar að taka ekki þátt í því að gera vandann stærri og enn umfangsmeiri heldur þvert á móti að vara við slíkum aðgerðum og hvetja menn til að ráðast í raunveruleg úrræði.