hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður segir, það kemur ýmislegt upp þegar menn ræða um málin. Við báðum um minnisblað um vaxtamuninn en ég get alveg upplýst að við spurðum til dæmis ekki um vexti á innstæðunni í Seðlabankanum, ég hafði ekki hugmyndaflug til að sjá að þeir mundu kannski hirða vexti af lánalínunni eða innstæðunni í Seðlabankanum, en auðvitað er það ekkert útilokað. Ef um sambærilegar upphæðir er að ræða er hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta getur slagað upp í 2 milljarða á ári. Það er ansi há upphæð. Við erum, virðulegi forseti, til dæmis í heilbrigðismálum að toga til milljón hér og milljón þar og 10 milljónir hér og 20 þar. Hér sitja menn uppi með þessar stóru upphæðir. Allt eru þetta skuldbindingar ríkissjóðs.
Ef ég skil hv. þingmann rétt kemst hann að þeirri niðurstöðu, sem mér finnst mjög rökrétt, að það að 53 þjóðir af þeim 187 sem eru aðilar að Alþjóðabankanum séu búnar að staðfesta stofnfjáraukninguna, sé tilefni til að fara betur yfir málið. Ef ég skil hv. þingmann rétt telur hann að það sé skynsamlegt og ég er sammála honum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta alveg ótrúlegt vinnulag hjá hv. þingmeirihluta, allra hluta vegna og sérstaklega í ljósi þess að þeir hafa haldið því fram að við stjórnarandstæðingar höfum verið að stunda málþóf. Það er búið að taka heilan dag í að kryfja málið í þingsal í stað þess að það hafi verið undirbúið betur í hv. þingnefnd. Mér finnst þetta fullkomlega ótrúleg vinnubrögð. Það væri gaman að heyra hvort (Forseti hringir.) hv. þingmaður sé sammála mér.