140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

sjúkratryggingar.

359. mál
[21:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Álfheiður Ingadóttir) (Vg):

Herra forseti. Velferðarnefnd hefur lokið umfjöllun um mál nr. 359 á þskj. 435. Í nefndaráliti meiri hlutans sem er að finna á þskj. 504 er mælt fyrir um breytingartillögu þess efnis að í stað orðanna „1. janúar 2014“ í 1. og 2. gr. komi: 1. janúar 2013.

Ég legg til að málinu verði vísað til 3. umr. að lokinni þessari.