umboðsmaður skuldara.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá meiri hluta velferðarnefndar um frumvarp til laga um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara.
Með frumvarpinu er lagt til að sérlöggjöf verði sett um greiðslu kostnaðar við rekstur umboðsmanns skuldara. Frumvarpinu er ætlað að gera gjaldtökuna skýrari og skilvirkari ásamt því að styrkja rekstrargrundvöll stofnunarinnar. Talið var nauðsynlegt að skjóta styrkari lagastoð undir gjaldtökuheimildir stofnunarinnar vegna óskýrleika við túlkun gildandi ákvæða, athugasemda sem gerðar höfðu verið við innheimtuna og í ljósi þess að umfang reksturs umboðsmanns hefur verið mun meira en búist var við og aukist mikið milli ára.
Rétt er að upplýsa það að nú eru um 1.600 mál í vinnslu hjá embættinu, önnur 1.600 hjá umsjónarmönnum sem starfa fyrir embættið, nær 4.000 umsóknir hafa borist um greiðsluaðlögun og ljóst er að árið 2012 verður það annasamasta í sögu þessa embættis en þar starfa núna yfir 80 starfsmenn á skrifstofu embættisins, að auki um 140 lögmenn úti í bæ sem vinna fyrir embættið.
Í 1. gr. frumvarpsins er skilgreint hverjir skuli standa straum af rekstri umboðsmanns og miðað við gildandi lög þannig að fjármálafyrirtæki, Íbúðalánasjóður, lífeyrissjóðir og vátryggingafélög standi straum af kostnaðinum. Þó er lögð til sú breyting frá gildandi lögum að Lánasjóður sveitarfélaga og Byggðastofnun verði undanskilin gjaldskyldunni enda stunda þau ekki lánastarfsemi til einstaklinga. Gerð var athugasemd við það fyrir nefndinni að fjármálafyrirtæki í slitameðferð væru ekki gjaldskyld samkvæmt ákvæðinu. Meiri hlutinn tekur undir þær ábendingar og telur rík jafnræðis- og sanngirnissjónarmið lúta að því að fjármálafyrirtæki í slitameðferð greiði hlut í rekstri umboðsmanns skuldara í samræmi við umfang lánasafns líkt og önnur fjármálafyrirtæki. Þá bendir meiri hlutinn á að þessi fyrirtæki eru gjaldskyld samkvæmt gildandi lögum. Leggur meiri hlutinn því til breytingu þessu til samræmis. Við útreikning á álagningarstofni hefur verið flutt sú breytingartillaga frá framlögðu frumvarpi að í stað hlutfallstölunnar 0,0377% í 1. mgr. 5. gr. komi talan 0,03% og er sú breytingartillaga flutt hér á þskj. 569. Það þýðir að álagning lækkar frá því sem gert var ráð fyrir í upphaflegu frumvarpi þar sem verið er að taka inn fleiri gjaldskylda aðila til að standa undir kostnaði við starfsemi umboðsmanns.
Nokkuð var rætt um álagningu gjaldsins vegna þeirra sem nýlega hafa hafið starfsemi eða hefja starfsemi á þeim fjármálamarkaði sem lögin taka til eftir gildistöku laganna. Í 5. gr. er kveðið á um að þeir séu undanþegnir gjaldi á því ári sem þeir hefja starfsemi, greiði síðan 500 þús. kr. árið á eftir og á þriðja ári starfseminnar greiði þeir gjald í samræmi við umfang lánastarfsemi. Helgast þetta af því að við álagningu hvers árs er miðað við umfang lánastarfseminnar á þarsíðasta ári.
Áætlaður rekstrarkostnaður umboðsmanns skuldara á næsta ári er liðlega einn milljarður og er það tæp 30% hækkun frá fyrri áætlun. Er sú kostnaðaraukning reiknuð út frá því áætlaða umfangi í starfseminni sem ég lýsti hér á undan. Rekstrarkostnaður stofnunarinnar hefur verið meiri en áætlað var enda umfang hennar verið mun meira en gert var ráð fyrir við stofnun. Hins vegar er gert ráð fyrir því að eftir að menn hafa farið yfir þann kúf sem liggur fyrir núna og áætlað er að afgreiða á árinu 2012 muni rekstrarkostnaður stofnunarinnar fara lækkandi á næstu árum. Meiri hlutinn telur mjög brýnt að leyst verði úr greiðsluvanda fólks án tafar. Þessi mál geta oft og tíðum verið bæði umfangsmikil og flókin og taka því nokkurn tíma í vinnslu, einkum þegar fjöldi kröfuhafa er mikill. Þá hafa samningaviðræður við kröfuhafa oft reynst tímafrekar en stærstu kröfuhafar greiða þó rekstrarkostnað umboðsmanns skuldara og hafa því beinan hag af því að úr málum sé leyst bæði fljótt og vel.
Rétt er að taka fram að í nefndinni voru kynnt sjónarmið þess efnis að málshöfðunarfrestur samkvæmt 8. gr. frumvarpsins væri of stuttur en samkvæmt ákvæðinu skal höfða mál til ógildingar ákvörðun sem tekin er á grundvelli laganna innan 45 daga frá því að aðila var gerð grein fyrir álagningunni. Meiri hlutinn áréttar að í sambærilegu ákvæði laga nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, er málshöfðunarfrestur einn mánuður, samanber 8. gr. laganna.
Þá er rétt að geta þess að í 5. gr. frumvarpsins hefur dagsetningin 30. nóvember 2011 fyrir mistök slæðst inn í texta ákvæðisins. Leggur meiri hlutinn til breytingu þessu til leiðréttingar.
Með lögum nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, var gerð sú breyting á fyrirkomulagi Stjórnarráðsins að stjórnarmálefni heyra undir ráðuneyti í samræmi við forsetaúrskurð. Með lögum nr. 116/2011 var því gerð sú breyting á lagasafninu að ekki er lengur tiltekið í lögum hvaða ráðherra fer með framkvæmd viðkomandi málaflokks heldur er það einungis tiltekið í forsetaúrskurði. Til að gæta lagasamræmis er því lagt til að í stað orðsins velferðarráðherra í 2. og 3. gr. komi ráðherra.
Að framansögðu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef gert hér grein fyrir.