140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

fólksflutningar og farmflutningar á landi.

192. mál
[22:56]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel enga hættu á því að það fyrirkomulag sem varðar fólksflutninga á vinsæla ferðamannastaði og ferðaþjónustan hefur séð um muni verða fyrir einhverjum breytingum vegna þessa. Eins og kemur skýrt fram í frumvarpinu er því ætlað að efla almenningssamgöngukerfið og nefndin ítrekar að í framhaldinu og líka í þeirri vinnu sem fram undan er verði skýrt skilið á milli almenningssamgöngukerfisins og ferðaþjónustunnar.

Varðandi flugrútuna sérstaklega, Leifsstöð – Reykjavík, þá fer forræðið yfir á sveitarfélögin. Þetta var boðið út sem heildarpakki og í sjálfu sér getur heildarpakkinn á Suðurnesjum í framhaldi af þessu verið boðinn út. Þetta á ekki að hafa nein einustu áhrif á þjónustu fyrir flugfarþega með flugrútu frá Leifsstöð til Reykjavíkur til hins verra eða neitt þess háttar.

Eins og ég segi fyrir það fólk sem hefur haft áhyggjur af samkeppnissjónarmiðum þá verður þeim að sjálfsögðu að fullu mætt í útboði.