140. löggjafarþing — 38. fundur,  16. des. 2011.

eftirlit með skipum.

347. mál
[23:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Guðfríður Lilja Grétarsdóttir) (Vg):

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2003, um eftirlit með skipum.

Frumvarpið felur í sér hækkun skipagjalds um 75% í samræmi við hækkanir á vísitölu neysluverðs frá nóvember 2002 til október 2011, auk verðlagsforsendna frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2012. Gjaldtakan leggst jafnt á alla skipaeigendur sem eiga skráð skip hér á landi og er miðað við skipastærð.

Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að gjaldskrár séu uppfærðar reglulega í samræmi við verðlagsþróun svo ekki þurfi að koma til eins mikillar hækkunar og hér er lagt til. Meiri hlutinn gerir einnig athugasemd við málsmeðferð frumvarpsins, en það kom afar seint fram. Meiri hlutinn bendir á að hækkanir á gjaldtöku eins og frumvarpið felur í sér eiga að fá faglega umfjöllun hjá þeirri nefnd sem málinu er vísað til áður en það er samþykkt í fjárlögum næsta árs. Það á auðvitað við um margar nefndir núna í ár.

Við leggjum hins vegar til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir þetta álit skrifa auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ólína Þorvarðardóttir, Þuríður Backman, Mörður Árnason, Róbert Marshall og Atli Gíslason.