aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.
Virðulegi forseti. Þegar þetta frumvarp var lagt fram af meiri hluta velferðarnefndar voru lagðar til tvær breytingar á lögum um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, litlu lögunum með langa nafnið. Annars vegar var lagt til að fyrirtæki sem stóðu að þessu samkomulagi settu umsóknareyðublað um sértæka skuldaaðlögun á vefinn hjá sér og hins vegar að líftími eftirlitsnefndarinnar yrði framlengdur. Í ljósi þess að þau fyrirtæki og stofnanir sem áttu aðild að samkomulagi um ákveðið verklag komust að samkomulagi, nánast alveg sjálf, um að koma þessu eyðublaði inn á vefinn hjá sér hefur meiri hlutinn ákveðið að leggja til að 1. gr. falli niður og þannig standi bara 2. gr. frumvarpsins eftir. Minni hlutinn, þ.e. ég, leggst ekki gegn þeirri breytingu. Það sem ég hef hins vegar áhuga á að ræða hér aðeins eru lögin sjálf. Í nýjustu skýrslu hinnar svokölluðu eftirlitsnefndar sjálfrar segir að úrræðið um sértæka skuldaaðlögun hafi ekki skilað þeim fjölda úrlausna fyrir einstaklinga og heimili sem vonast var til við setningu laganna.
Svo mörg voru þau orð.
Það hefur líka sýnt sig eins og rætt var hér fyrr í kvöld að vinna varðandi hina leiðina sem stjórnvöld ákváðu að fara, greiðsluaðlögun, hefur líka gengið mjög hægt. Fá mál hafa verið samþykkt og hvorugt þessara úrræða hefur verið sú lausn á greiðslu- og skuldavanda heimilanna sem lofað var og væntingar stóðu til. Þess vegna er það sem ég kalla litla lagabálkinn með langa nafnið hið fullkomna flopp hvað varðar lagasetningu og árangur.
Þessi lög hafa einna helst skilað þremur skýrslur frá eftirlitsnefndinni. Það er einkar athyglisvert að heill lagabálkur gangi út á skýrslugerð hjá ákveðinni nefnd. Spurning er hvort viðkomandi ráðuneyti hefði ekki getað gert þær bara sjálft.
Það sem kemur hins vegar fram í þessum skýrslum er að nefndin hefur fjallað um allar þær leiðir sem hefur verið valið að fara í, sértæku skuldaaðlögunina og greiðsluaðlögunina og raunar almennt 110%-leiðina. Þar á meðal hefur hún komið líka inn á þann vanda sem hefur komið upp við úrlausn þessara mála, sérstaklega hefur hún fjallað um vanda þeirra sem eru með lánsveð. Þar hefur komið fram hvað varðar lánsveðin að 110%-leiðin virðist hafa skapað handahófskennt óréttlæti við beitingu 110% reglunnar, bæði milli lánþega hjá opinberum stofnunum á borð við Íbúðalánasjóð og milli lánþega sem skipta við ólíkar stofnanir.
Það hefur líka komið ítrekað fram að mjög margir skuldarar sem urðu fyrir forsendubrestinum hafa séð eigið fé sitt hverfa í fasteignum sínum, að sama skapi líka séð æ minna verða eftir í buddu sinni vegna hækkandi skatta og hækkandi verðlags. Skuldarar hafa kvartað sáran, kannski ekki hátt, en að minnsta kosti heima hjá sér. Við sáum það sérstaklega í grein sem Karl Sigfússon skrifaði fyrir stuttu þar sem hann lýsti tilfinningu þorra lántakenda á Íslandi þegar þeir horfa upp á lánin hjá sér hækka sífellt og eigið fé í fasteignum nánast hverfa.
Í þeirri von að þessi lög gætu gert eitthvert gagn vil ég reifa hér ákveðna hugmynd sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ræddi fyrst í viðtali á Bylgjunni 23. nóvember, hugmynd til úrlausnar á vandanum við yfirskuldsetningu. Enn sem komið er er töluverður fjöldi af fólki sem hefur farið í gegnum 110%-leiðina samt ekki einu sinni nálægt því að vera kominn niður í 110% skuldsetningu, m.a. vegna lánsveða. Ákveðnar tímasetningar hafa verið festar sem eru viðmiðið eins og hjá Íbúðalánasjóði, m.a. vegna þess að það var sett sem skilyrði varðandi aðfararhæfar eignir. Þessi hugmynd gengur út á að koma til móts við þá sem eru enn þá að fást við yfirskuldsetningu, lánsveð og skort á greiðsluvilja.
Ég tel mjög brýnt að ræða þessa hugmynd þó að klukkan sé farin að nálgast 12 og það sé búið að semja um þinglok. Ég tel að þetta sé nokkuð sem við ættum virkilega að skoða. Sú hugmynd gengur út á að ákveðið hlutfall tekna sem notað er í afborganir húsnæðislána yrði skattfrjálst í ákveðinn fjölda ára. Þannig væri hægt að setja hámark á skattafsláttinn og afslátturinn nýttur til að niðurgreiða lánin enn frekar. Á móti mundu fjármálafyrirtækin hugsanlega leggja sitt af mörkum með því að færa niður höfuðstól lánanna enn frekar.
Ólafur Kr. Valdimarsson reifar síðan sambærilega aðferð í grein sinni „Lánsveðin — Raunhæf lausn“ í Morgunblaðinu 7. desember sl. Þar bendir hann á að þessi lausn byggist á sömu samfélags- og jafnaðarhugsjón og liggur á bak við uppbyggingu tekjuskattskerfis okkar, en þar krefjumst við lægra hlutfalls í skatta af lágum launum. Með því að fara þessa leið mætti leiðrétta skuldastöðu þessa hóps án þess að stofna til beins kostnaðar hjá þriðja aðila. Leiðin er fjármögnuð með launum þeirra sjálfra. Þarna væri einnig komið í veg fyrir fjölda gjaldþrota þar sem gengið yrði að lánsveðum sem oft eru hjá öldruðum foreldrum. Þessi aðferð gæti líka komið til móts við aðra skuldara sem eru enn með meira en 110% skuldsetningu á eignum sínum þrátt fyrir að hafa farið í gegnum 110%-leiðina. Það gæti reynst töluvert umfangsmikið að útfæra tillöguna og það er mikilvægt að skoða hvaða áhrif þetta hefði þá á stöðu Íbúðalánasjóðs vegna þess að ef skattafslátturinn væri skilyrtur við að hann færi inn á innborganir á lánum hjá Íbúðalánasjóði þýddi það að Íbúðalánasjóður væri með peninga sem hann gæti hugsanlega ekki nýtt til að borga upp lán sín hjá lífeyrissjóðunum. Það þyrfti að skoða þetta heildstætt og líka áhrifin á ríkissjóð. Þá legg ég til að skipaður verði starfshópur með fulltrúum allra þingflokka og sérfræðingur með til að skoða útfærslu á því hvernig nýta megi skattkerfið til að koma til móts við skuldsett heimili. Stjórnarmeirihlutinn hefur fyrst og fremst horft til vaxtabóta, en hér tel ég að það ætti hugsanlega að vera hægt að nota skattkerfið á annan og nýjan máta til að koma til móts við þessi heimili.
Ég er með tillögu um að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
„Ráðherra skal við gildistöku laga þessara skipa starfshóp með fulltrúum allra þingflokka og sérfræðingum. Starfshópurinn skal skoða mögulegar útfærslur á því að tiltekinn hluti skulda heimila verði metinn sem stofn til frádráttar frá tekjuskatti. Hópurinn skal skila ráðherra fyrstu tillögum sínum og drögum að lagabreytingum eftir því sem efni standa til en þó eigi síðar en 1. mars 2012. Ráðherra skal eigi síðar en 1. apríl 2012 leggja fram frumvarp til breytinganna fyrir Alþingi.“
Ég vona að þrátt fyrir að við séum að ræða þetta svona seint og að stjórnvöld hafi ítrekað að búið sé að gera allt sem ætlunin er að gera til að koma til móts við skuldsett heimili gefi menn sér — ég ítreka það — tíma til að skoða þessa leið. Það er ekki nóg að gert. Það er meira sem við þurfum að gera til að tryggja greiðsluviljann hjá venjulegum Íslendingum, fólki sem hefur horft upp á þá fjármuni sem það lagði inn í fasteign sína hverfa, fólki sem hefur farið í gegnum þær leiðir sem stjórnvöld hafa boðið upp á og stendur enn þá frammi fyrir því að vera með yfirskuldsettar eignir, fólki sem gerði ekki annað en að biðja foreldra sína, ömmu og afa eða aðra ættingja eða vini um að lána sér fyrir hluta af veðsetningunni vegna þess að það er það sem því stóð til boða.
Ég vonast til þess að menn skoði þetta jákvætt. Þetta er mál sem ég tel mjög brýnt. Við höfum að mínu mati eytt við þinglokin allt of miklum tíma í að tala um aðra hluti en þá sem virkilega skipta fólk máli. Við eigum að taka á skuldavandanum. Þetta er hugmynd og leið að lausn. Ég vildi óska þess að menn væru tilbúnir að hlusta. Það er von mín, en ég get ekki sagt að ég sé sérstaklega bjartsýn.