Landsvirkjun o.fl.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu vegna máls nr. 318 sem er á þskj. 537. Í upphafi er getið um það hverjir komu til fundar við nefndina og sendu inn umsagnir.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum laga um Landsvirkjun, laga um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur, raforkulaga og laga nr. 19/2011, um breytingu á raforkulögum. Frumvarpið skiptist í fjóra kafla sem hver fjallar um þær breytingar sem lagt er til að gerðar verði á hverjum framangreindra laga. Í raun má segja að frumvarpið feli í sér þrjár gerðir breytinga: Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á lögum um Landsvirkjun og lögum um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur þannig að í stað hugtakanna lán og lánaskuldbindingar verði hugtakið fjármálagerningur tekið upp í nokkur ákvæði þeirra. Í öðru lagi er lagt til að 8. gr. raforkulaga verði breytt á þann veg að í stað þess að kveðið sé á um að flutningsfyrirtæki raforku skuli vera í beinni eigu íslenska ríkisins og/eða sveitarfélaga skuli það vera í meirihlutaeigu þeirra og/eða fyrirtækja sem eru í þeirra eigu. Í samhengi við framangreint er lagt til að 18. gr. laga um breytingu á raforkulögum verði breytt þannig að sá hluti hennar sem mælir fyrir um að a-liður 3. gr. þeirra komi til framkvæmda 1. janúar 2015 falli brott. Þá er lagt til að ákvæði til bráðabirgða I við raforkulög verði breytt á þann veg að í stað þess að það kveði á um skyldu iðnaðarráðherra til að skipa nefnd til að gera beina tillögu um kaup ríkis eða sveitarfélaga á hlut í flutningsfyrirtæki raforku er gert ráð fyrir að slíkri nefnd verði falið að kanna möguleika á breyttu eignarhaldi á því í gegnum beint eignarhald ríkis og/eða sveitarfélaga og gera tillögu um kaup þeirra á hlut orkufyrirtækja í flutningsfyrirtækinu. Í þriðja lagi er lagt til að gildistöku 2.–4. málsliðar 1. mgr. 14. gr. raforkulaga verði frestað til 1. janúar 2014.
Í umsögnum sem og í máli gesta á fundum nefndarinnar komu fram nokkur sjónarmið og athugasemdir sem meiri hlutinn tók til sérstakrar skoðunar.
Fyrst um það sem stendur í nefndarálitinu um fjármálagerninga.
Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að gerðar verði breytingar á 9. gr. laga um Landsvirkjun þannig að fyrirtækinu verði m.a. heimilað að stofna til fjárhagslegra skuldbindinga til þarfa þess í stað þess að því sé heimilt að taka lán í sama skyni. Þá kveður greinin á um að nýir fjármálagerningar sem njóta eigi eigendaábyrgðar séu háðir samþykki ráðherra. 2. gr. frumvarpsins gerir ráð fyrir að orðinu lánaskuldbindingar í ákvæði til bráðabirgða í lögunum verði skipt út fyrir orðið fjármálagerningar þannig að ákvæðið kveði á um að ábyrgðir eigenda fyrirtækisins nái til fjármálagerninga þess í stað lánaskuldbindinga. Það mun einnig hafa þau áhrif að eftir samþykkt frumvarpsins beri fyrirtækinu að greiða árlegt ríkisábyrgðargjald af fjármálagerningum í stað lánaskuldbindinga. Samkvæmt 3. og 4. gr. frumvarpsins er lagt til að gerðar verði samkynja breytingar á orkuveitulögum, þ.e. að orðinu lánaskuldbindingar verði skipt út fyrir orðið fjármálagerningar í 1. gr. og gervöllum III. kafla þeirra.
Í umsögn Ríkisábyrgðasjóðs er bent á að fjármálagerningur eins og það hugtak sé skýrt í verðbréfaviðskiptalögum taki einungis til tiltekinna fjárskuldbindinga á sviði verðbréfaréttar, þ.e. til framseljanlegra verðbréfa sem hægt sé að eiga viðskipti með á fjármagnsmarkaði og afleiðusamninga almennt. Landsvirkjun fjármagni sig að verulegu leyti með lánasamningum við banka. Slíkir samningar séu gagnkvæmir samningar og ekki sé öruggt að þeir séu því framseljanlegir til slíkra viðskipta. Er það mat sjóðsins að ekki sé tryggt að lánasamningar fyrirtækisins falli undir hugtakið fjármálagerningar eins og það er skýrt í frumvarpinu og ekki sé víst að nægilegt sé að nota það hugtak eigi fjármálaráðherra að verða heimilt að veita ríkisábyrgð vegna slíkra samninga. Telur sjóðurinn að betra væri að nota hugtak sem nær yfir allar þær gerðir fjárskuldbindinga sem um sé að ræða. Nefndin óskaði viðbragða Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur í ljósi umsagnar Ríkisábyrgðasjóðs. Af hálfu Orkuveitu Reykjavíkur var tekið undir nauðsyn þess að gætt væri að því að rétt hugtök séu notuð við lagasetningu. Fellst Orkuveitan á röksemdir Ríkisábyrgðasjóðs og leggur til að brugðist verði við þeim. Sama má segja að hafi komið fram af hálfu Landsvirkjunar.
Í umsögn Ríkisábyrgðasjóðs kemur fram sú tillaga að í stað hugtaksins fjármálagerningar í viðeigandi ákvæðum frumvarpsins komi orðasambandið fjárhagslegar skuldbindingar. Tilgangur tillögunnar er að setja fram orðasamband sem hafi rýmri merkingu en hugtakið fjármálagerningur og rúmi þannig bæði útgáfu og aðild að fjármálagerningum sem og lán samkvæmt áðurgreindum skilningi lögfræðiorðabókar.
Meiri hlutinn fellst á framangreinda tillögu Ríkisábyrgðasjóðs og gerir hana að sinni með breytingartillögu við 1.–4. gr. frumvarpsins.
Þá er hér fjallað um kafla sem heitir Eignarhald á flutningsfyrirtækinu sem er í 8. gr. raforkulaga þar sem kveðið er á um að eitt fyrirtæki, flutningsfyrirtækið, skuli annast flutning á raforku og stjórnun flutningskerfisins. Þá kemur fram að það fyrirtæki skuli vera í beinni eigu íslenska ríkisins og/eða sveitarfélaga. Eins og áður segir er í 5. gr. frumvarpsins lögð til sú breyting á framangreindri grein raforkulaga að í stað þess að flutningsfyrirtækið skuli vera í beinni eigu ríkisins og/eða sveitarfélaga skuli það vera í meirihlutaeigu ríkis, sveitarfélaga og/eða fyrirtækja sem alfarið eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga.
Samkvæmt almennum athugasemdum frumvarpsins fjallar frumvarpsgreinin um framtíðarfyrirkomulag á eignarhaldi í flutningsfyrirtækinu Landsneti hf.
Ég vísa til frekari umræðu um þennan kafla í nefndarálitinu, en enginn umsagnaraðila virðist beinlínis leggjast gegn samþykkt 5. og 8. gr. frumvarpsins um það sem ég fjallaði hér um.
Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að fara yfir næsta kafla sem er um frestun gildistöku aðskilnaðarákvæðis, sem á við fyrst og fremst um Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og fram hefur komið kveður 6. gr. frumvarpsins á um að ákvæði 2.–4. málsliðar 1. mgr. 14. gr. raforkulaga komi til framkvæmda 1. janúar 2014. Í þeirri breytingu felst tímabundin frestun í tvö ár á framkvæmd ákvæða 14. gr. laganna varðandi aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta í rekstri raforkufyrirtækja.
Í almennum athugasemdum við frumvarpið kemur fram að eigendanefnd Orkuveitu Reykjavíkur hafi með bréfi, dags. 8. nóvember síðastliðinn, farið þess leit við iðnaðarráðherra að framangreindri aðgreiningu yrði frestað. Var beiðni fyrirtækisins studd þeim rökum að verulegir fjárhagslegir hagsmunir væru í húfi við uppskiptingu Orkuveitu Reykjavíkur, annars vegar skattalegir hagsmunir og hins vegar hagsmunir sem felast í samskiptum við lánardrottna fyrirtækisins. Þannig væru milljarða króna hagsmunir í húfi að vel takist til við aðskilnað samkeppnis- og sérleyfisþátta starfseminnar. Almennur órói einkenni enn fjármálakerfi heimsins og því þurfi nánara samráð við stjórnvöld og lánveitendur vegna uppskiptingar fyrirtækisins. Þar af leiðandi sé óskað eftir viðbótarfresti.
Á fundi nefndarinnar kom fram að innan Orkuveitu Reykjavíkur hefði verið unnið mikið starf við undirbúning uppskiptingar og að þeirri vinnu yrði haldið áfram af fullum krafti þrátt fyrir að frestun fengist á gildistöku umræddra greina og málsgreinar raforkulaga. Þá kom fram, og á það legg ég mikla áherslu, það sama var sagt sennilega fyrir nákvæmlega einu ári síðan, að gert væri ráð fyrir að ljúka aðgreiningarvinnunni á árinu 2012 þannig að formleg uppskipting kæmi til framkvæmda eins fljótt og unnt væri þrátt fyrir tveggja ára framlengingu. Ég legg mikla áherslu á það enn einu sinni vegna þess að hér erum við í raun að samþykkja þessa frestun í fjórða sinn.
Nokkrir umsagnaraðilar leggjast gegn samþykkt frumvarpsgreinarinnar. Bendir meðal annars Fallorka ehf. á að þau rök sem liggja að baki 14. gr. raforkulaga eigi enn við og hafi fullt gildi. Sjá megi slíks stað í því að Orkuveita Reykjavíkur hafi misnotað gróflega undanþágu sína frá ákvæðum hennar haustið 2010 þegar fyrirtækið hækkaði gjaldskrá raforkudreifingar um 40% en raforkusölu um 11% þrátt fyrir yfirlýsingar um að hækkunarþörf vegna dreifingar væri um 20% en hækkunarþörf vegna raforkusölu væri um 27%. Þá hafi fyrirtækið tekið að undirbjóða önnur orkufyrirtæki haustið 2011 í ljósi eigin offramleiðslu á orku. Voru framangreind sjónarmið ítrekuð á fundi nefndarinnar af fulltrúum Fallorku.
Í nefndarálitinu er svo fjallað um umsögn Samkeppniseftirlitsins en fulltrúar frá eftirlitinu komu á fund nefndarinnar. Eins og ég segi hefur þessari aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta í rekstri orkufyrirtækja þrívegis verið frestað með vísan til aðstæðna á fjármálamörkuðum og viðkvæmrar stöðu orkufyrirtækjanna varðandi fjármögnun. Í þetta sinn er lagt til að fjórða frestunin eigi sér stað og það er auðvitað gert í ljósi aðstæðna sem enn eru á fjármálamörkuðum, vegna viðkvæmrar stöðu orkufyrirtækjanna og þeirra miklu fjárhagslegu hagsmuna sem undir eru. Telur meiri hlutinn ekki fært annað en að fallast á að frestað verði tímabundið aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta í rekstri orkufyrirtækja.
Ég ítreka það enn einu sinni að ég hvet og hef hvatt forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur til að keyra þennan aðskilnað áfram og ég fulla trú á því að það verði gert. Fram kom á fundi nefndarinnar að að því sé unnið núna af meiri krafti en áður og vonandi fer að birta til á fjármálamörkuðum þannig að það gangi í gegn.
Virðulegi forseti. Nefndin gerir nokkrar breytingartillögur sem eru á umræddu þingskjali 537, sem ég ætla ekki að lesa upp. Undir nefndarálitið skrifa, auk þess sem hér stendur, formanns nefndarinnar og framsögumanns, hv. þingmenn Lilja Rafney Magnúsdóttir, Magnús Orri Schram, Skúli Helgason og Björn Valur Gíslason.
Virðulegi forseti. Þetta er ekki alveg búið því að nefndin mælir fyrir framhaldsnefndaráliti með breytingartillögu við sama mál, þ.e. mál nr. 318 á þskj. 583. Nefndin hefur fjallað um málið þar sem hún tók málið að nýju til fundar í gær.
Í umsögn Orkuveitu Reykjavíkur um málið var bent á að vafi ríkti um merkingu hugtaksins lánsfjárþörf í 3. málslið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 139/2001. Þannig hefði sú túlkun á ábyrgðartakmörkun framangreinds málsliðar 2. mgr. lagagreinarinnar komið fram að ábyrgð eigenda Orkuveitunnar gæti einungis tekið til 80% af 80% af framkvæmdakostnaði, þ.e. 64% af heildarfjárþörf verkefnisins. Þá kom fram að sá túlkunarvafi hefði valdið erfiðleikum í framkvæmd þar sem lánveitendur væru ófúsir að veita lánafyrirgreiðslu á grundvelli lagaákvæðis sem væri undirorpið slíkum vafa.
Nefndin tók því framangreinda ábendingu til skoðunar en taldi ekki tímabært að taka afstöðu til hennar í því nefndaráliti á þingskjali 537 sem ég fór yfir hér áðan.
Nefndin telur merkingu 3. málsliðar 2. mgr. 1. gr. laga nr. 139/2001 nokkuð ljósa. Fram hjá því verður þó ekki litið að vafi virðist hafa ríkt um gildi hans. Virðist sá vafi valda verulegum vandkvæðum við fjármögnun verkefna. Þá hefur verið bent á að það traust sem almennt hafi ríkt á milli lántakenda og lánveitenda við gerð lánssamninga hafi beðið verulegan hnekki í ljósi svokallaðra gengistryggingadóma Hæstaréttar Íslands. Framangreindu til viðbótar hefur komið fram af hálfu forsvarsmanna Orkuveitunnar að sú óvissa sem ríkir um túlkun á þessari umræddu grein hafi valdið verulegum vandkvæðum í framkvæmd.
Allt framangreint virðist hafa aukið á fjármögnunarvanda Orkuveitunnar.
Í ljósi þess sem fram hefur komið, og til að taka af öll tvímæli, telur nefndin ekki annað fært en að gera þá breytingu á 3. málslið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 139/2001 að í stað þess að takmörkun eigendaábyrgðar miðist að hámarki við 80% lánsfjárþarfar verkefna sem veitt er eigendaábyrgð á skuli hámark hennar miðast við 80% fjárþarfar hinna sömu verkefna.
Virðulegi forseti. Ég vísa til frekari skilgreiningar á þeim liðum sem hér er rætt um og gerð er breytingartillaga um á þskj. 583, að við 3. gr. frumvarpsins bætist við nýr stafliður, b-liður, svohljóðandi:
Í stað orðsins „lánsfjárþörf“, sem gert er að umræðuefni í nefndarálitinu í 3. málslið 2. mgr. kemur: fjárþörf.
Undir þetta skrifa allir hv. nefndarmenn atvinnuveganefndar nema hv. þm. Þór Saari sem var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Virðulegi forseti. Ég hef stytt hér mál mitt um þau nefndarálit sem sett eru fram en ítreka enn að ég vísa til þeirra í skrifuðum texta á þskj. 537 og í framhaldsáliti nefndarinnar með breytingartillögu á þskj. 583 við mál nr. 318.