140. löggjafarþing — 38. fundur,  17. des. 2011.

efling tónlistarnáms.

383. mál
[01:01]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms.

Frumvarpið byggist á samkomulagi frá 13. maí 2011 um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðu nemenda til námsins. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á nokkrum lögum sem gera það kleift að samkomulagið verði að veruleika. Lagðar eru til breytingar á lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, lögum um námsgögn, lögum um grunnskóla, lögum um húsnæðismál og lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Fram kom við umfjöllun um málið að nú þegar hafa forsendur breyst nokkuð frá því að samkomulagið var undirritað þar sem nemendum hefur fjölgað nokkuð sem og laun hækkað meira en gert var ráð fyrir. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að viðræður um endurskoðun þess hefjist fyrir 1. júní 2012. Nefndin gerir ráð fyrir að formlegar viðræður milli ríkis og sveitarfélaga um endurskoðun samkomulagsins vegna breyttra forsendna muni fara fram sem fyrst. Nefndin telur að tryggja þurfi mat á og eftirlit með því að með framlagi ríkisins sé markmiði samkomulagsins náð, þ.e. að efla tónlistarnám og gera nemendum kleift að stunda hljóðfæranám á framhaldsskólastigi og söngnám á mið- og framhaldsskólastigi óháð búsetu.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þingmenn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Siv Friðleifsdóttir skrifa undir álit þetta með fyrirvara um að við endurskoðun samkomulagsins verði tryggt að sveitarfélögin beri ekki skarðan hlut frá borði vegna hinna breyttu forsendna sem og að taka verði tillit til eininga við ákvörðun á útreikningi nemendaígilda til tónlistarskólanna.

Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.