140. löggjafarþing — 38. fundur,  17. des. 2011.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 97/2011 um breytingu á X. viðauka við EES-samninginn.

350. mál
[01:05]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Hér er leitað heimildar Alþingis til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97/2011. Með henni er gerð sú breyting að það er kveðið á um að ríkin þurfi auk mannlæss traustlista í tengslum við þjónustutilskipunina að setja upp og starfrækja véllæsan traustlista, þ.e. traustlista sem vélar geta lesið.

Þessi ákvörðun kallar á smávægilegar breytingar á lögum nr. 28/2001, um rafrænar undirskriftir. Efnahags- og viðskiptaráðherra mun leggja fram lagafrumvarp á yfirstandandi löggjafarþingi til innleiðingar á ákvæðum hennar. Hvorki er gert ráð fyrir að þær muni hafa í för með sér umtalsverðan kostnað né stjórnsýslulegar afleiðingar hér á landi.

Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.