kosning umboðsmanns Alþingis.
Um kosninguna gildir annars nýtt ákvæði í 7. mgr. 75. gr. þingskapa sem segir að þegar kjósa á um einn mann séu þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því.
Enn fremur byggist kosningin nú á nýju ákvæði í 1. gr. laga um umboðsmann Alþingis en þar segir að forsætisnefnd Alþingis skuli tilnefna mann við kosninguna. Það hefur forsætisnefnd gert og tilnefnir núverandi umboðsmann, Tryggva Gunnarsson. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist og er Tryggvi Gunnarsson því einn í kjöri. Forseti hefur ákveðið að kosning skuli fara fram. Jafnframt hefur forseti ákveðið að kosningin verði með atkvæðagreiðslukerfinu eins og þingsköp heimila. Henni má jafna við leynilega skriflega kosningu.
Atkvæðagreiðslukerfið verður nú þannig stillt að töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa greitt atkvæði en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði. Hið sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Tryggva Gunnarsson ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn á borðum þingmanna þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn menn hafa ýtt. Eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflum.
[Gengið var til kosningar. Atkvæði féllu þannig að Tryggvi Gunnarsson hlaut 41 atkvæði en sjö þingmenn greiddu ekki atkvæði.]