140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

kosning umboðsmanns Alþingis.

[10:39]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Kosningunni er lokið. Tryggvi Gunnarsson hlaut 41 atkvæði en sjö skila auðu. Tryggvi Gunnarsson er því réttkjörinn umboðsmaður Alþingis frá 1. janúar 2012 til ársloka 2015.

Ég óska Tryggva Gunnarssyni til hamingju með kosninguna og óska honum velfarnaðar í þessu mikilvæga embætti á vegum Alþingis. Ég vona að samstarf Alþingis við umboðsmann verði framvegis jafnfarsælt og -gott og það hefur verið undanfarin ár.