Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frestun á gildistöku lagaákvæðis til 1. nóvember 2012 um að hefja skuli hljóðritanir á ríkisstjórnarfundum þann 1. janúar. Ég tel það eðlilegt í ljósi umsagna frá tveimur prófessorum um að það séu ákveðnir gallar á þessu lagaákvæði sem geri það að verkum að í staðinn fyrir að hljóðritanir séu geymdar og hafðar leynilegar í 30 ár verði í vissum tilvikum opnaður aðgangur að þeim daginn eftir sem er ekki langur frestur. Til að laga þá hnökra fellst ég á þennan frest og treysti því að ríkisstjórnin standi með okkur sem viljum aflétta leyndarhyggju (Forseti hringir.) í stjórnkerfi Íslands.