140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

306. mál
[15:33]
Horfa

Frsm. minni hluta  (Jón Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er ljóst að öflugur kvikmyndaiðnaður getur ekki dafnað hér á landi nema hann fái ákveðnar skattalegar ívilnanir í starfsemi sinni. Það frumvarp sem flutt hefur verið um endurgreiðslu á kostnaði við kvikmyndagerð er staðfesting á því. Fyrir vikið sjá stjórnvöld sig knúin til að bæta rekstrarskilyrði kvikmyndagerðar með sértækum aðgerðum fyrir þessa atvinnugrein. Á sama tíma aftur á móti, virðulegi forseti, stefnir ríkisstjórnin í þveröfuga átt gagnvart atvinnulífinu almennt, hefur stóraukið á það álögur, ekki síst með breytingum á skattalögum.

Efnahagslegir og skattalegir hvatar eru alls ekki óþekktir hér á landi gagnvart tiltekinni starfsemi. Við höfum meðal annars gert fjölda fjárfestingarsamninga í þessu skyni þó að þeir séu allt annars eðlis en sá stuðningur sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir. Um tíma voru hins vegar þær aðstæður orðnar uppi að fyrirtæki, svo sem orkufrek stóriðjufyrirtæki, kusu fremur að fara inn í hið almenna efnahags- og skattumhverfi sem hér hafði verið búið til en að lúta fjárfestingarsamningum. Slíkt umhverfi örvaði atvinnuuppbyggingu almennt og er því æskilegt af þeim ástæðum. Þessu er aftur á móti ekki að heilsa í dag, þess vegna hafa stjórnvöld gripið til einstakra úrræða fyrir tilteknar atvinnugreinar sem öðrum standa ekki til boða. Sem dæmi má nefna nýlega löggjöf sem ætlað er að stuðla að aukinni nýsköpun. Þessi úrræði byggjast auðvitað á pólitísku mati hverju sinni og eru líka viðurkenning á því að of miklir skattar lami atvinnustarfsemi en að lækkun skatta örvi hana. Í því felst af hálfu ríkisstjórnarinnar pólitísk yfirlýsing og viðurkenning á því að hin almenna skattstefna hennar gagnvart atvinnulífinu sé skaðleg, a.m.k. á ýmsum sviðum.

Nokkur gagnrýni kom fram á þetta frumvarp frá fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins en þar segir meðal annars, með leyfi forseta:

„Telja má vafasamt að ríkisstyrkt innlend framleiðsla sjónvarpsefnis og kvikmynda skili ríkissjóði tekjum að ráði umfram það sem ella væri og sem vegi að marki upp kostnaðinn við styrkina. Bæði má ætla að starfsemin og sú velta sem í henni felst ætti að miklu leyti að geta farið fram án styrkja vegna eftirspurnar samfélagsins eftir efninu og einnig að annars væri hluti þeirra sem að þessu hafa starfað að sinna störfum í öðrum atvinnugreinum sem greiði álíka skatta og skyldur. Samkvæmt frumvarpinu er auk þess gert ráð fyrir að ríkisstuðningurinn að meðtöldum öðrum beinum styrkjum hins opinbera geti orðið allt að 85% í þessari framleiðslu. Kann það að vekja upp spurningar um sjálfbærni slíkra verkefna og um mismunun gagnvart margvíslegum öðrum atvinnugreinum, t.d. hugbúnaðargerð eða laxeldi svo dæmi séu tekin.“

Auðvitað væri best að hafa hér við lýði almennt skattumhverfi sem væri hagfellt atvinnulífinu og hvetti til aukinnar atvinnusköpunar. Í þessu tilfelli er talið að bregðast þurfi við með sérstökum hætti til að þessi iðnaður geti dafnað hér á landi eins og almennur vilji er til. En þetta vekur upp vangaveltur um það hvernig almennt er orðið í umhverfi fyrirtækja og hvernig við almennt drögum til okkar beina innlenda fjárfestingu í íslensku atvinnulífi og eflum atvinnulíf innan lands. Það er ekki alveg samræmi í því sem ríkisstjórnin er að gera í þessum efnum og það er mjög bagalegt að við skulum búa við það að pólitísk óvissa hafi aukist á flestum sviðum atvinnulífs sem leiðir af sér að bæði innlendur iðnaður, þar á meðal sjávarútvegur, og þeir aðilar sem mundu vilja koma til landsins með beina erlenda fjárfestingu í íslensku atvinnulífi halda að sér höndum.

Það hefur aðeins verið rætt um þá heimild sem er í þessu frumvarpi til að fresta útborgun á styrkjum. Í 8. gr. reglugerðar um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi segir, með leyfi forseta:

„Fjárhæð endurgreiðslna samkvæmt reglugerð þessari er háð fjárveitingum Alþingis eins og fram kemur í fjárlögum hverju sinni. Iðnaðarráðherra hefur heimild til að fresta útborgun endurgreiðslna sem kunna að vera umfram fjárveitingar Alþingis hverju sinni. Séu samþykktar endurgreiðslur á fjárlagaárinu umfram fjárveitingar er ráðherra heimilt að fresta endurgreiðslu, annaðhvort að öllu leyti eða að hluta til, yfir á næsta fjárlagaár.“

Umsagnaraðilar vöruðu mjög við beitingu þessa reglugerðarákvæðis. Þeir sögðu hreinlega að það kynni að leiða til þess að áhugasamir erlendir kvikmyndaframleiðendur sem væru að skoða Ísland sem valkost kysu sér annan vettvang til starfsemi sinnar en Ísland. Leikreglur verða með öðrum orðum, virðulegi forseti, að vera skýrar í þessu efni sem öðrum þegar kemur að því að laða erlenda fjárfestingu í íslensku atvinnulífi til landsins. Það sama á við í kvikmyndageiranum og öllum öðrum greinum.

Í umræðunni hefur komið fram gagnrýni á það hvernig þessi mál eru framkvæmd hjá okkur. Þetta er ekkert annað en opinn tékki á ríkissjóð sem verður að mæta útgjöldum, annaðhvort á fjáraukalögum eða fjárlögum næsta árs á eftir. Það skapar mikla óvissu fyrir þá sem vilja koma, sérstaklega í byrjun árs, til að vinna verkefni, ljúka þeim á einhverjum ákveðnum tíma og þurfa svo að bíða mánuðum saman, jafnvel í einhverri óvissu um það hvort tekin verður ákvörðun í fjárlögum ársins á eftir um að greiða það sem þeir eiga inni samkvæmt lögum þessum eða hvort það geti dregist jafnvel enn lengur. Það gefur augaleið að þetta getur verið úrslitaatriði þegar kemur að ákvörðun um hvar á að staðsetja verkefnin. Það er því alveg ljóst í mínum huga og okkar hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar sem sátum í nefndinni að það þarf að leita leiða til að einfalda þetta kerfi. Ég hef ekki á hraðbergi hugmyndir um hvernig það mætti verða en ég tek undir með hv. þm. Ásbirni Óttarssyni sem hafði uppi gagnrýni á þennan þátt málsins í ræðum sínum áðan.

Virðulegi forseti. Þegar þessi mál eru skoðuð í heild er hægt að draga þau saman með eftirfarandi hætti: Kvikmyndagerð hefur vaxið á undanförnum árum og hér er um að ræða umtalsverð umsvif sem skila ríkissjóði tekjum, skapa mikla atvinnu og í raun gera okkur kleift að standa hér myndarlega að kvikmyndagerð. Hitt er ljóst að kvikmyndagerðin þrífst ekki í því skattalega umhverfi sem atvinnureksturinn í landinu býr við, a.m.k. ekki í stórum stíl. Skattalegar ívilnanir og önnur umbun virðast því forsenda við núverandi aðstæður fyrir því að efla megi þessa starfsemi.

Það fyrirkomulag sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu býr við þá alvarlegu annmarka sem ég fór yfir áðan vegna þeirra opnu skuldbindinga sem það hefur í för með sér fyrir ríkissjóð. Standi vilji löggjafans til þess að ívilna þessari atvinnugrein sérstaklega er brýnt að takast á við þessa annmarka.