Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Virðulegi forseti. Með samþykkt þess frumvarps sem hér um ræðir er farin auðveldasta leiðin af fjórum sem lagðar eru til af hálfu Fjármálaeftirlitsins þar sem það er viðurkennt að hluti af lífeyrisgreiðslum til opinberra starfsmanna sé hluti af launakjörum. Það sem er verið að gera með samþykkt þessa frumvarps, með því að hækka vikmörkin, er að fresta launagreiðslunum á þessu ári inn í framtíðina. Það er ekki verið að gera neitt annað. Það er ekki verið að taka á vandamálinu. Þegar A-deildin var stofnuð átti hún að vera sjálfbær og menn ætluðu að ráðast í það verkefni sem B-deildin var, en hér er enn og aftur verið að fresta vandanum með því að samþykkja þetta frumvarp.