140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

306. mál
[16:27]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða gott mál, mál sem framsóknarmenn eru afar stoltir af að hafa komið á á sínum tíma. (BJJ: Rétt.) Við viljum fylgja því eftir af fullri hörku og styðjum þetta heils hugar. [Kliður í þingsal.]