140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

306. mál
[16:30]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn hefur séð ljósið en bara í einni atvinnugrein. Ef hún mundi beita sömu aðferðum á allar atvinnugreinar í landinu færi atvinnulífið í gang og blómstraði. Þetta höfum við sjálfstæðismenn lagt til en hæstv. ríkisstjórn er svo þröngsýn að hún sér bara eina litla atvinnugrein og lætur allt hitt koðna niður.