140. löggjafarþing — 39. fundur,  17. des. 2011.

svæðisbundin flutningsjöfnun.

371. mál
[16:43]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð bara að taka fram vegna þess að hér er talað um eitthvert samkomulag um afgreiðslu þessa máls að ég hef lagt á það áherslu að það þurfi efnislegan rökstuðning fyrir hinu nýja flutningsjöfnunarkerfi. Ég skil alveg sjónarmið þingmanna Norðausturkjördæmis sem hafa áhuga á því að sveitarfélög þeirra séu í hæsta styrkflokki en vandamálið er að í kerfinu er byggt á því að ekki sé styrkt einungis á grundvelli kílómetrafjarlægðar heldur kostnaðar sem er umfram venjubundinn kostnað vegna hvers og eins kílómetra.