140. löggjafarþing — 41. fundur,  17. des. 2011.

þingfrestun.

[17:26]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

„Handhafar valds forseta Íslands gjöra kunnugt:

Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, frá 16. janúar 2011 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 16. janúar 2012.

Gjört í Reykjavík, 14. desember 2011.

Jóhanna Sigurðardóttir. Ingibjörg Benediktsdóttir.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.

___________________

Jóhanna Sigurðardóttir.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 140. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir krefjandi störf á árinu sem er að líða um leið og ég óska þeim, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.