140. löggjafarþing — 42. fundur,  16. jan. 2012.

tilkynning forseta um skýrslur til nefnda.

[15:09]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfum, dagsettum 9., 10. og 12. janúar sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um fjórar skýrslur Ríkisendurskoðunar, þ.e. skýrslu um skuldbindandi samninga 1 (iðnaðarráðuneyti), skýrslu um skuldbindandi samninga 3 (innanríkisráðuneyti), skýrslu um skuldbindandi samninga 2 (velferðarráðuneyti) og skýrslu um skuldbindandi samninga 4 (forsætisráðuneyti).