140. löggjafarþing — 42. fundur,  16. jan. 2012.

störf og stefna ríkisstjórnarinnar, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[15:13]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Forsætisráðherra hefur 15 mínútur til framsögu en aðrir flokkar hafa tíu mínútur fyrir talsmenn í fyrstu umferð. Allir flokkar hafa fimm mínútur í annarri og þriðju umferð. Forsætisráðherra hefur fimm mínútur í lok umræðunnar. Þingmenn utan flokka hafa fimm mínútur við lok fyrstu umferðar.

Röð flokkanna verður: Samfylking, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur og Hreyfingin. Hefst nú umræðan og til máls tekur hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir.