140. löggjafarþing — 43. fundur,  17. jan. 2012.

viðræður við ESB um sjávarútvegsmál.

[13:37]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið svo langt sem það nær. Ég vil í fyrsta lagi vekja athygli á því að það var fráfarandi ráðherra sem lýsti sérstökum áhyggjum af því hvernig samningsstaðan gagnvart Evrópusambandinu liti út eftir að hann væri horfinn af vettvangi. Í því lá auðvitað sú meining að ekki yrði sama andstaðan við að gangast undir kröfur Evrópusambandsins á þessu sviði, sem farið er fram á í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, og hafði verið undir hans stjórn.

Ég lít þannig á að ráðherrann hafi í raun og veru lagt þá línu að engum kafla um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál yrði lokið án þess að hann styddi að minnsta kosti þann kafla, hann væri tilbúinn til að styðja þá niðurstöðu og þannig yrði viðræðum við Evrópusambandið aldrei lokið á sviði sjávarútvegs- og landbúnaðarmála með hans stuðningi þegar hann væri ráðherra án þess að hann styddi niðurstöðuna efnislega hvað þann þátt varðar, (Forseti hringir.) hvað sem líður síðan heildarmati á stöðunni. Þetta er mikið grundvallaratriði. Við þurfum að vita hverjir bera uppi kaflana. Ætla þeir að láta brotna á andstöðu við að gangast undir regluverk Evrópusambandsins eða líta þeir þannig á (Forseti hringir.) að þeir séu bara í verktöku fyrir Alþingi og ætli að koma með besta mögulega samning sem þeir ætla annaðhvort að styðja eða vera á móti?