140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

tilkynning um skriflegt svar.

[15:02]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 560, um rammaáætlanir Evrópusambandsins um menntun, rannsóknir og tækniþróun, frá Vigdísi Hauksdóttur, þar sem gagnasöfnun og úrvinnsla gagna krefst frekari tíma. Þess er vænst að svar berist eigi síðar en 1. febrúar.