140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

staða íslenskrar kvikmyndagerðar.

[16:26]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég vil eins og aðrir þakka hv. þm. Þráni Bertelssyni fyrir að hefja máls á þessu. Eins og fram kom í máli hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur er hann sá sem gerst þekkir þetta af þeim sem hér eru innan veggja.

Hann vakti athygli sá virðisauki sem hinar svokölluðu skapandi greinar færa inn í efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar, þá sérstaklega efnahagslífið. Mér er eiginlega slétt sama hvort við tölum um skapandi greinar eða listgreinar, mér finnst virðisaukinn skipta meira máli, sem staðfestur var í skýrslu og kom öllum á óvart. Hvernig getum við tryggt að svo verði áfram í náinni framtíð?

Þá hljótum við að þurfa að hugsa til þess fyrir þessa atvinnugrein, kvikmyndagerðina eða kvikmyndalistina eða hvað við kjósum að nefna hana, að það umhverfi sem þeirri atvinnugrein er skapað hér á landi þarf að vera eins og umhverfi allra annarra atvinnugreina í landinu. Það þarf að vera stöðugt. Það þarf að vera gegnsætt. Það þarf að eyða í því allri óvissu — vegna þess, frú forseti, að óvissa og óstöðugleiki fyrir hvaða atvinnugrein sem er er versti óvinur hennar.

Það hefur sýnt sig að það er þverpólitískur samhljómur um að styrkja menningarmál í landinu. Við þurfum með einhverjum hætti að styrkja Kvikmyndasjóð til þess sem hann var áður og gera betur til að halda utan um það sem vel er gert og til að við getum séð að sá virðisauki skapandi greina, sem öllum kom á óvart, haldist ekki bara eins og hann er, heldur aukist og verði bæði landi og þjóð til sóma.