140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

staða íslenskrar kvikmyndagerðar.

[16:33]
Horfa

Þráinn Bertelsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Dagskráin í þinginu hefst oft á hálftíma þar sem nokkuð snörp orðaskipti eiga sér stað svo það fer ekki hjá því að maður komist ofurlítið við þegar dettur á svona logn og blíða og allir ljúka upp einum munni um að nú þurfi að taka á á einhverju tilteknu sviði. Núna tölum við um hinar skapandi greinar og fyrst og fremst um kvikmyndagerðina. Framtíðin er björt hjá kvikmyndagerðinni ef marka má orð þeirra sem hér hafa talað sem ég er alveg sannfærður um að má marka.

Kvikmyndagerðin hefur lifað af eitthvert kaldasta vor sem nokkur listgrein nokkurs staðar hefur þurft að þrauka. Núna er vonandi sumar og sól í kvikmyndagerðinni. Núna eru að renna upp betri og blómlegri tímar. Uppskeran af verkum þeirra sem lögðu drög að þessari atvinnu- og listgrein hér á landi fer að koma í ljós með ríkulegri hætti en hefur sést hingað til.

Það gleður mig óskaplega að sjá mörg kunnugleg andlit og mörg ný andlit úr greininni minni á þingpöllum. Það slær aðeins á einmanaleikann sem ég finn stundum fyrir í salnum [Kliður í þingsal.] þó að ég eigi hérna marga góða vini.

Ég þakka fyrir þessa umræðu, sérstaklega þakka ég hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem alla tíð hefur sýnt íslenskri menningu skilning í orði og verki. Hið sama á við um okkar ágæta og hæstv. menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur.