140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

staða íslenskrar kvikmyndagerðar.

[16:35]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Þráni Bertelssyni og þakka kærlega fyrir umræðuna. Von mín er að óvissutímanum sem hefur verið í gegnum þann mikla niðurskurð sem öll menning og allar listgreinar hafa mátt þola, kvikmyndagerðin þar einna mest undanfarin þrjú ár, sé að ljúka. Kannski er það einkenni á þessum skapandi greinum að mér finnst mjög margir fulltrúar þeirra hafa brugðist við með nýjum og skapandi hugmyndum til að leysa þann vanda sem við höfum staðið frammi fyrir.

Ég tek undir með hv. þm. Skúla Helgasyni sem sagði að um þetta snerist hin fjölbreytta atvinnustefna. Það snýst til að mynda um að reiða sig meira á hinar skapandi greinar, að hafa ekki öll eggin í sömu körfu. Mér heyrast hv. þingmenn Framsóknarflokksins vera sammála í þessum efnum. (Gripið fram í: Og Sjálfstæðisflokksins.) Og Sjálfstæðisflokksins, sem ég nefndi raunar áðan, hv. þingmaður. (Gripið fram í: … líka Vaðlaheiðargöng.)

Mér finnst mikilvægt að við ræðum við tækifæri það jafnvægi hvernig við viljum sjá fjármögnun kvikmyndagerðar þróast til lengri tíma. Þá vísa ég annars vegar í framlög úr Kvikmyndasjóði sem byggjast á faglegum forsendum og hins vegar í endurgreiðslur sem nýtast jafnt erlendum og innlendum aðilum. Eins og fram kom í máli mínu hafa endurgreiðslurnar vaxið sem hlutfall af framlögum hins opinbera til kvikmyndagerðar. Mér finnst eðlilegt að við ræðum líka hvernig við viljum sjá þau mál þróast.

Það er rétt hjá hv. þm. Margréti Tryggvadóttur að íslenskar listir og menning eru hlutfallslega lítið styrktar af ríkinu. Það kemur fram í skýrslu um hin hagrænu áhrif skapandi greina. Þar er stuðningur hins opinbera um það bil 10%, en hann er hins vegar grunnurinn sem hitt hvílir á. Þess vegna skiptir svo miklu að ríki og sveitarfélög sýni stuðning. Þá geta fulltrúar hinna skapandi greina farið að framleiða þann virðisauka sem hér var nefndur.

Ég vísa til ýmiss annars sem ég kem því miður ekki að hér, breytts fyrirkomulags hvað varðar miðastyrki svo dæmi sé nefnt, þeirrar stefnumótunar sem er fram undan í kvikmyndamenntun þar sem við erum að fá til landsins Henning Camre sem áður var forstöðumaður danska kvikmyndaskólans og síðar dönsku kvikmyndastofnunarinnar. Hann ætlar að verða okkur innan handar í þeirri stefnumótun. (Forseti hringir.) Ég held að tækifærin fram undan séu mjög mörg.