vörumerki.
Frú forseti. Ég þakka þessi svör svo langt sem þau ná. Það er náttúrlega bagalegt að það skuli ekki liggja fyrir þegar við ræðum þetta mál hversu umfangsmikil þessi starfsemi er en það mun kannski skýrast við störf efnahags- og viðskiptanefndar sem tekur málið fyrir. Ég hefði haldið að þeir aðilar sem bera þetta mál inn í þingsal ættu að geta svarað grundvallarspurningum sem þessum.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að öðru sem tengist þessu dálítið. En þær gjaldtökuheimildir sem verið er að færa hér Einkaleyfastofunni má að mörgu leyti bera saman við þær heimildir sem Fjármálaeftirlitið hefur. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sé sáttur við það fyrirkomulag sem nú ríkir, m.a. gagnvart framlögum til Fjármálaeftirlitsins, að Alþingi Íslendinga hefur í raun og veru afskaplega lítið eða nær ekkert um það að segja hvernig það þróast. Telur hæstv. ráðherra ekki — af því að ég tel að hann sé þingræðissinni — að Alþingi Íslendinga, þ.e. nefndir Alþingis, sem þessar stofnanir heyra undir, eigi að koma að áætlunum þessara stofnana á fyrri stigum til að hafa áhrif á það með hvaða hætti starfsemi og umfang þeirra þróast? Eða er hæstv. ráðherra á því, eins og stendur í þessu frumvarpi, að þetta eigi að vera sjálfdæmi hæstv. fjármálaráðherra sem gefur út ákveðna reglugerð um það og útfærir hvað megi taka gjald fyrir og hvað það verði hátt og fleira? Er hæstv. ráðherra í alvöru að segja það hér, í ljósi þeirrar gagnrýni sem við höfum komið með varðandi rekstur Fjármálaeftirlitsins, að málið komi Alþingi lítið sem ekkert við?
Hæstv. ráðherra talar um að það sé mikið að gera hjá þinginu og menn hafi margt að starfa. Ég vil nú minna hæstv. ráðherra á að á þessu ári mun hann gegna fimm ráðherraembættum þannig að það verður nóg að gera hjá honum. Ég kvarta ekki undan vinnu hér í þinginu og spyr því hæstv. ráðherra hvort hann telji ekki að þingið eigi að geta (Forseti hringir.) komið að þessum málum á fyrri stigum.