samgönguáætlun 2011-2022.
Hæstv. forseti. Ég ítreka það sem ég áður sagði að ýmsar framkvæmdir sem gert var ráð fyrir í fyrri áætlunum er ekki að finna í þessari áætlun. Það á við um ýmsar minni háttar framkvæmdir en þá hafa aðrar komið til sögunnar og ný sýn á forgangsröðun. Hvað þann einstaka vegkafla áhrærir sem hv. þingmaður vísar til treysti ég mér ekki til að fara í umræðu um á þessu stigi, en að sjálfsögðu á það við um þetta þingskjal, þetta mikla þingskjal sem tekur á samgöngumálum á Íslandi til 12 ára, að þingið á að sjálfsögðu eftir að yfirfara þetta og skoða þetta málefnalega og hugsanlega koma með sínar áherslur. Það er augljóst mál.
Sú vinna sem við erum að kynna hér byggir á mjög víðtæku samráði við sveitarfélögin, við landshlutasamtök, (Forseti hringir.) við fjölmarga aðila. Þetta er ekki að spretta upp úr neinu öðru en mikilli og frjórri (Forseti hringir.) umræðu þar sem margir hafa komið að, þar á meðal sveitarfélögin eins og ég áður gat um og landshlutasamtök sveitarfélaga.