samgönguáætlun 2011-2022.
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir þær áherslur sem fram komu í máli hv. þm. Ólínu Þorvarðardóttur.
Hvað varðar áherslur í samgöngumálum, þ.e. að við eigum fyrst að horfa til þeirra svæða sem búa við lakastar samgöngur áður en við förum í önnur svæði sem eru betur haldin þá vil ég leggja áherslu á að hvað byggðaþáttinn varðar þá er sérstök áhersla á Vestfjörðum. Í áætluninni í heild sinni er aukin áhersla á byggðaþáttinn. Í stað þess að einblína á hraðann til að komast til höfuðborgarinnar, er núna horft til byggðanna og þeirra kjarna sem þar eru, þó krossana kunni að vera að finna annars staðar en á þeim síðum sem hv. þingmaður vísaði til.
Varðandi Vestfirðina sem búa við lakastar samgöngur á Íslandi þá er staðreyndin sú að hlutfallslega komum við til með að verja meira fjármagni til samgöngubóta á Vestfjörðum en á öðrum svæðum. Það er ekki rétt að segja að allt sé í uppnámi varðandi Vestfjarðaveginn á sunnanverðum fjörðunum. Það er rétt að deilur hafa verið um hluta af þeirri leið, en við gerum ráð fyrir því, svo að ég vísi til þeirrar blaðsíðu sem hv. þingmaður vék að áðan, bls. 9 í áætluninni, að til framkvæmda á þessum vegi sérstaklega er áætlað að verja 1.000 millj. kr. á yfirstandandi ári, öðrum 1.000 milljónum á árinu 2013 og 1.000 milljónum á árinu 2014. Við erum einnig að ráðast í aðrar samgöngubætur á Vestfjörðum þannig að hlutfallslega erum við að verja meira fjármagni til þessa svæðis en annarra svæða í landinu ef þessi áætlun gengur eftir.
Ég vil (Forseti hringir.) ítreka að ég er algerlega sammála hv. þingmanni að því leyti að við eigum að leggja höfuðáherslu á þau svæði (Forseti hringir.) sem búa við lakastar samgöngur.