140. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2012.

staða dýralæknisþjónustu um land allt.

[13:46]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka þá umræðu sem hér er hafin. Þetta er mikilvægt mál og skiptir mjög miklu fyrir landbúnaðinn í hinum dreifðu byggðum. Það er alveg rétt sem fram hefur komið að þessi mál voru rædd mjög mikið í þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd þegar við á sínum tíma fjölluðum um hið svokallaða matvælafrumvarp og í undirbúningi á öllum stigum þess máls. Við gerðum okkur grein fyrir því að óhjákvæmilegt væri að breyta því fyrirkomulagi sem hafði verið, við yrðum að taka upp það fyrirkomulag að annars vegar værum við með dýralækna sem hefðu þetta sérgreinda eftirlitshlutverk og síðan sæju aðrir dýralæknar um þjónustuhlutverkið.

Hins vegar gerðum við okkur öll grein fyrir því strax í upphafi að vandinn væri í því fólginn að við búum við mikla sérstöðu á Íslandi. Við erum með stórt og dreifbýlt land og aðstæður til að aðskilja þessa hluti eru ekki eð sama hætti til staðar alls staðar á landinu. Þess vegna fórum við mjög rækilega ofan í þá þætti málsins við meðferð þess í þingnefndinni og í samræmi við það sem frumvarpið kvað á um var sett inn sérstakt ákvæði til bráðabirgða í 41. gr. þar sem svo segir, með leyfi virðulegs forseta:

„Ráðherra er heimilt að fela héraðsdýralækni að sinna tímabundið almennri þjónustu við dýraeigendur á tilteknu svæði ef heilbrigði eða velferð dýra er stefnt í hættu enda fáist ekki dýralæknar til að sinna slíkri þjónustu við dýraeigendur á umræddu svæði. Heimild ráðherra samkvæmt þessari málsgrein fellur úr gildi 1. janúar 2015.“

Breytingin sem við gerðum var fyrst og fremst fólgin í því að lengja þennan umþóttunartíma og möguleika og það er vissulega slæmt ef ekki hefur tekist að nýta þá heimild. Ég vil inna hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eftir því hvort þess verði freistað frekar að reyna að nýta heimildina. Svo verður auðvitað að taka undir það sem hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson sagði, þessi vaktsvæði eru býsna stór. Ég vek til dæmis athygli á því að samkvæmt lögunum er gert ráð fyrir að eitt vaktsvæðið (Forseti hringir.) sé allt Norðurland vestra eins og við þekktum það í hinni gömlu kjördæmaskipan.