samgönguáætlun 2011--2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans. Ég spurði ráðherrann að því í umræðunni fyrr í dag hvort það væri ekki grundvallaratriði þegar fjármuni skorti til málaflokks eins og framkvæmda í vegamálum og gerðar langtímaáætlunar um framkvæmdir, að áður en slík áætlun væri afgreidd lægi fyrir stefnumörkun um það hvernig við ætluðum að nota veggjöld eins og menn nota í fjölmörgum löndum. Það er gert til þess að draga meira fé inn í nauðsynlegar framkvæmdir í vegakerfinu, bæði til þess að efla samgöngur sem innviði en líka til þess að tryggja betur umferðaröryggi og vinna á þeim óhóflega fjölda slysa, m.a. banaslysa, sem verða í umferðinni. Ég vil inna þingmanninn eftir því hvort hann telji ekki nauðsynlegt að menn marki stefnu um gjaldtöku til að kosta frekari framkvæmdir en gert er ráð fyrir í samgönguáætlun.
Því tengt vil ég spyrja hv. þingmann, vegna þess að svo gæti farið að leggja þurfi fjármuni úr ríkissjóði inn í verkefni sem hann þekkir vel, þ.e. Vaðlaheiðargöngin: Gæti ekki þurft að gera ráð fyrir því í þessari áætlun, til þess að tryggja að það verkefni gangi fjárhagslega upp, að fjármunir komi inn í það úr ríkissjóði?