samgönguáætlun 2011--2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Mér er alveg fullljóst hvernig hæstv. ráðherra vill leysa vegamálin á sunnanverðum Vestfjörðum. Hann kom fram með ákveðna hugmynd, þ.e. hálsaleiðina, og ég tel hann mann að meiri að hafa snúið af þeirri braut eftir að hann varð var við andstöðu heimamanna í stað þess að setja undir sig hausinn eins og margir hæstv. ráðherrar gera nú oft og tíðum. Það tel ég gott. Það er ekki hægt að saka hæstv. ráðherra um að hann hafi ekki hlustað á heimamenn. Ég þykist hins vegar vita og geng út frá því að hæstv. ráðherra muni ganga í þau verkefni að leysa málin með heimamönnum varðandi láglendisveg. Hæstv. ráðherra sagði í andsvari sínu að það hefði minni umhverfisáhrif að fara utar í firðina, þá mundu menn hlífa leirunum. Það er mjög mikilvægt að skoða það líka í sambandi við þá nýju tækni sem þróast hefur varðandi raforkuframleiðslu og sjávarfallavirkjanir og þar fram eftir götunum þannig að þá opnast hugsanlega möguleikar þar.
Ég hvet hæstv. ráðherra til að halda áfram þeirri vinnu sem hann er í með heimamönnum því að eins og við vitum er tíminn fljótur að líða þannig að mikilvægt er að þeirri vinnu sé hraðað og að menn finni endanlega lausn.
Ég vil líka aðeins koma inn á það sem hæstv. ráðherra sagði varðandi þær stofnanir sem fjalla um þessi málefni, ég verð að viðurkenna að ég les það nú með öðrum hætti en áður því að textinn í skýrslum frá svokölluðum sérfræðingum á umhverfisréttarsviði er þannig að ekki er hægt annað en að staldra við. Án þess að ég ætli að nefna nein nöfn kom eftirfarandi fram í skýrslu frá ákveðinni stofnun sem fjallaði um veginn um Kjálkafjörð. Þar var bent á að búið væri að malbika veginn til Ísafjarðar og að taka þyrfti tillit til þess þegar menn löguðu veginn til Patreksfjarðar. Ég held að menn þurfi að rýna aðeins betur í landakortið áður en þeir senda fleiri skýrslur frá sér.