140. löggjafarþing — 45. fundur,  19. jan. 2012.

samgönguáætlun 2011--2022.

393. mál
[19:01]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Hv. þingmaður er nú það heiðarlegur og segir yfirleitt það sem henni finnst. Ég heyri að hv. þingmaður hefur sömu áhyggjurnar og ég, að meira eigið fé þurfi einmitt inn í þetta verkefni til að það gangi upp og við getum verið fullviss um það. Þess vegna er svo mikilvægt að við ræðum það út frá þeim forsendum sem við erum að gera.

Það mætti líka stilla þessu upp í hinn endann — ég teldi það skynsamlegra til að vera þá heiðarlegur og eðlilegur í umræðunni — og segja: Ef þessar forsendur ganga allar eftir væri hægt að skila því til baka einmitt inn í verkefni sem eru seinna á áætluninni. Ég teldi því að skynsamlegra væri að fara þá leiðina frekar en að horfa fram hjá stærstu hornunum í málinu til þess að réttlæta það og þurfa þá þar af leiðandi ekki að segja: Þetta er ekki að ýta öðrum verkefnum aftur fyrir.

Það er mjög mikilvægt því að auðvitað er fullt af veikleikum í þessu verkefni sem ég hef miklar áhyggjur af. Það er nefnilega mikilvægt núna að við horfumst í augu við það og tökum ekki alltaf þessar bjartsýnustu spár af því að það eru mjög margir veikleikar inni í þessu, t.d. gagnvart ávöxtunarkröfunni sem er á verkefninu. Eins væri skynsamlegt, held ég, að ræða það að ef við mundum taka ákvörðun um að setja meira eigið fé inn í þetta gætum við hugsanlega farið af stað og boðið út strax fjármögnun á verkefninu einmitt til þess að vita hvar við stöndum. Þá væri hægt að segja: Jú, það getur verið að setja þurfi inn í það á tveimur árum eða þremur 500–700 milljónir á ári. Og ef þetta mundi ganga eftir samkvæmt björtustu vonum þá mundum við bara skila því til baka einmitt til þeirra verkefna innan þessa svæðis, eins og við erum að hólfa þetta niður. Ég fagna því að hv. þingmaður kemur fram með þeim hætti sem hún gerði í svari sínu áðan.